Uppsögn Grímur Kárason hefur sagt upp slökkviliðsstjórastarfi sínu.
Uppsögn Grímur Kárason hefur sagt upp slökkviliðsstjórastarfi sínu. — Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Grímur Kárason sagði starfi sínu sem slökkviliðsstjóri Norðurþings lausu í liðinni viku. Í samtali við mbl.is segir Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings að uppsögnin komi ekki til vegna ásakana um að Grímur hafi vangreitt starfsmönnum…

Grímur Kárason sagði starfi sínu sem slökkviliðsstjóri Norðurþings lausu í liðinni viku. Í samtali við mbl.is segir Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri Norðurþings að uppsögnin komi ekki til vegna ásakana um að Grímur hafi vangreitt starfsmönnum sínum heldur vegna kerfislegra breytinga á slökkviliðinu. „Hann óskaði eftir starfslokum og það er búið að ganga frá því við hann,“ sagði Katrín.

Greint var frá því í maí að Grímur hefði verið sakaður um að hafa dregið tugi milljóna króna af launum slökkviliðsmanna í sveitarfélaginu á um tíu ára tímabili. Upphæðin nam um 70 milljónum en starfsmenn hafa fengið helming hennar greiddan til baka frá sveitarfélaginu.