Faraldur Í dag er lítið er um covid-sýnatöku úti í samfélaginu og getur vel verið að fólk smitist af veirusýkingunni án þess að fá formlega greiningu.
Faraldur Í dag er lítið er um covid-sýnatöku úti í samfélaginu og getur vel verið að fólk smitist af veirusýkingunni án þess að fá formlega greiningu. — Morgunblaðið/Eggert
Aukinn fjöldi greindra covid-smita í lok maí virðist ekki hafa verið upphaf á nýrri smitbylgju líkt og varð síðasta sumar. Það getur þó verið flókið að meta stöðu útbreiðslunnar þar sem lítið er um sýnatökur

Elínborg Una Einarsdóttir

elinborg@mbl.is

Aukinn fjöldi greindra covid-smita í lok maí virðist ekki hafa verið upphaf á nýrri smitbylgju líkt og varð síðasta sumar. Það getur þó verið flókið að meta stöðu útbreiðslunnar þar sem lítið er um sýnatökur. Þetta segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir í samtali við Morgunblaðið.

„Við sáum smá aukningu þarna í seinni hluta maí og vissum líka af því að það væri hópsýking á Landspítala. Við fórum auðvitað aðeins á tærnar að fylgjast með hvort þetta væri kannski upphafið að bylgju eins og við sáum síðasta sumar þegar það varð aukning í júní, júlí og svolítið fram eftir inn í haustið,“ segir Guðrún.

Hún bætir við að alla jafna hafi um tíu covid-smit verið að greinast á viku en síðustu tvær vikurnar í maí fór sú tala upp í um tuttugu smit. „Svo gerðist það í síðustu viku að þetta datt niður og þá er hugsanlegt að þetta hafi aðallega verið þessi hópsýking á Landspítalanum. Við erum enn þá að fylgjast með hvort þetta sé byrjunin á einhverju en okkur fannst ekki alveg ástæða til að álykta það,“ segir Guðrún.

Þau smittilfelli sem eru nú skráð í gagnagrunn landlæknis eru ýmist greind með sýnatöku á Landspítala eða skráð með greiningu lækna þannig að ætla má að margir fái nú covid án þess að fá eiginlega greiningu eða að þeir yfirhöfuð átti sig á því að þeir hafi smitast. Aðspurð segir Guðrún að þetta geti flækt það að meta útbreiðslu sjúkdómsins. „Það er aðeins flóknara að meta þetta þegar ekki er verið að taka mikið af sýnum úti í samfélaginu og læknar eru kannski ekki að gera þessa greiningu heldur.“

Höf.: Elínborg Una Einarsdóttir