Sniglar Kílómetragjaldið var rætt á fundi FEMA í Svíþjóð um helgina.
Sniglar Kílómetragjaldið var rætt á fundi FEMA í Svíþjóð um helgina. — Ljósmynd/Njáll Gunnlaugsson
Njáll Gunnlaugsson, stjórnarmaður í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglunum, segir bifhjólamenn upplifa óréttlæti gegn sér. Samtökin hafi komið með ábendingar um frumvarp kílómetragjaldsins í meðförum samgöngunefndar Alþingis, en ekkert tillit hafi verið tekið til þeirra

Njáll Gunnlaugsson, stjórnarmaður í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, Sniglunum, segir bifhjólamenn upplifa óréttlæti gegn sér.

Samtökin hafi komið með ábendingar um frumvarp kílómetragjaldsins í meðförum samgöngunefndar Alþingis, en ekkert tillit hafi verið tekið til þeirra.

Í samtali við Morgunblaðið segir Njáll að samtökin hafi bent á að erlendir ferðamenn ættu að greiða mun lægra gjald fyrir notkun bifhjóla en íslenskir eigendur. Samkvæmt frumvarpinu skulu bifhjólaeigendur greiða 4 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra.

Lögðu samtökin fram tillögu um að gjaldið yrði lækkað til samræmis við það sem erlendir bifhjólaeigendur myndu greiða.

„Í stað þess að lækka gjaldið fyrir okkur ákvað nefndin að hækka gjaldið fyrir útlendinga og halda okkur í sömu tölu,“ segir Njáll og nefnir jafnframt að um mjög skrýtna ákvörðun sé að ræða, þá sérstaklega í ljósi þess að rökstuðningur nefndarinnar sé að flest bifhjól séu 400 kíló og yfir, sem Njáll segir alrangt.

Að sögn Njáls eru þung bifhjól einnig tífalt léttari en léttustu bílar sem falla undir kílómetragjaldið en eigendur slíkra bíla ættu greiða 6,7 krónur á kílómetra.

„Þetta er engan veginn sanngjarnt gagnvart bifhjólafólki. Við erum að borga tífalt á við aðra,“ segir Njáll og heldur áfram: „Fólk hefur verið að tala um að þetta sé dauðadómur fyrir að keyra mótorhjól á Íslandi af því að það eru nú nógu háar tryggingar fyrir. Okkur finnst illa að okkur vegið.“

Aðspurður segir Njáll að málið verði tekið fyrir á fundi samtakanna síðar í vikunni, en hann var staddur í Svíþjóð á fundi FEMA, Evrópusamtaka bifhjólafólks, sem Sniglar eru aðilar að, er blaðamaður náði af honum tali.