Sigríður Margrét Oddsdóttir
Sigríður Margrét Oddsdóttir
Samtök atvinnulífsins (SA) vara eindregið við því að pólitískar ákvarðanir um bætt kjör öryrkja séu fjármagnaðar á kostnað lífeyrissjóða, það bitni mest á ellilífeyri verkafólks. Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um stjórnarfrumvarp um víxlverkun …

Andrés Magnússon

andres@mbl.is

Samtök atvinnulífsins (SA) vara eindregið við því að pólitískar ákvarðanir um bætt kjör öryrkja séu fjármagnaðar á kostnað lífeyrissjóða, það bitni mest á ellilífeyri verkafólks.

Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um stjórnarfrumvarp um víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna, sem forystumenn í launþegahreyfingunni á borð við Vilhjálm Birgisson í Starfsgreinasambandinu hafa einnig gert.

„Ef þetta frumvarp verður að lögum þá verða mánaðarlegar greiðslur öryrkja umtalsvert hærri en grunnlaun verkafólks á almennum vinnumarkaði. Það segir sig sjálft að slíkt skapar ranga hvata og er ekki til þess fallið að auka verðmætasköpun,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið.

„Hitt er jafnvel enn alvarlegra, ef við horfum á þetta frumvarp og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, að þá má sjá að sjóðfélagar lífeyrissjóðanna eiga að borga fyrir þessa miklu hækkun til öryrkja.“

Hún bendir á að jöfnunarframlag vegna mismunandi örorkubyrði sjóðanna falli niður 2026. Eina leiðin fyrir sjóðina til þess að standa undir auknum greiðslum til öryrkja sé að skerða ellilífeyri.

„Það eru einna helst lífeyrissjóðir verkafólks sem munu lenda í því.“

Hún segir fyrirhugaðar breytingar hættulegar lífeyriskerfinu.

„Ef ríkisstjórnin ætlar að hækka örorkubætur á þessum tímapunkti um 20% að jafnaði þá þarf hún að axla pólitíska ábyrgð á því en ekki senda reikninginn á lífeyrissjóðina, þeir eru í eigu sjóðfélaga en ekki ríkisins.“

Breyttur örorkulífeyrir

Til stendur að leggja niður jöfnunarframlag ríkisins af tryggingagjaldi

Hver lífeyrissjóður þarf þá að greiða örorkugreiðslur til sinna sjóðfélaga með örorku

Bitnar mest á ellilífeyri úr sjóðum verkafólks

Höf.: Andrés Magnússon