Þeir Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari munu flytja fjölbreytta tónlist í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ í kvöld, þriðjudaginn 10. júní, kl. 19.30. Segir í tilkynningu að á efnisskránni séu meðal annars An Olde…

Þeir Þórir Jóhannsson kontrabassaleikari og Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari munu flytja fjölbreytta tónlist í Hvalsneskirkju í Suðurnesjabæ í kvöld, þriðjudaginn 10. júní, kl. 19.30. Segir í tilkynningu að á efnisskránni séu meðal annars An Olde Fashioned Bass­piece eftir Árna Egilsson, Ave Maria eftir Astor Piazzolla, Reverie eftir Giovanni Bottesini og Fimm dansar eftir Annette Kruisbrink. Aðgangseyrir á tónleikana er 3.500 kr. en ókeypis er fyrir 18 ára og yngri.