Dagur B. Eggertsson, alþingismaður og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, tekur undir meginniðurstöðu innri endurskoðunar og ráðgjafar Reykjavíkurborgar (IER) að borgin ætti að meta heildarkostnað vegna tjóns við framkvæmdir á leikskólanum Brákarborg og sækja skaðabætur til verktaka og/eða ráðgjafa.
Þetta segir í skriflegu svari Dags til Morgunblaðsins er hann var inntur eftir viðbrögðum sínum við skýrslu innri endurskoðunar um Brákarborg.
Stórfelldir gallar komu í ljós í Brákarborg eftir að húsnæðið hafði gengið í gegnum umfangsmiklar og kostnaðarsamar breytingar. Kom í ljós að þungi þakplötunnar var allt of mikill eftir að steypulag hafði verið sett ofan á plötuna og torf í ofanálag. Leiddi það til þess að burðarvirkið var umfram álagsþol þess.
Skýrsla um hönnun og framkvæmdir Brákarborgar var kynnt í borgarráði á fimmtudag og birtist sama dag. Hún varpar ljósi á alvarleg mistök sem gerð voru í undirbúningi er varðar hönnun, framkvæmd og eftirlit með byggingu Brákarborgar.
Kemur þar t.a.m. fram að byggingin hafi ekki uppfyllt burðarvirkiskröfur samkvæmt staðli um burðarþol og jarðskjálfta. Einnig að burðarvirkishönnuður hafi ekki uppfyllt hæfisskilyrði fyrir burðarvirkishönnun skólabyggingar og að hann hafi verið valinn á grundvelli lægsta verðs. Sömuleiðis hafi vantað samþykktar burðarvirkisteikningar og fullnægjandi hönnunargögn þegar framkvæmdir hófust.
Í svari sínu segir Dagur borgarráð vera að taka skynsamlega á málinu með því að fela Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra að leiða vinnu að innri umbótum á grundvelli skýrslunnar.
„Miklu skiptir svo að framkvæmdum ljúki farsællega og starfsemi geti hafist í hinu nýja húsnæði Brákaborgar í haust. Það er hluti af metnaðarfullri áætlun borgarinnar við að fjölga leikskólaplássum, sem ég fagna,“ segir Dagur.