— Morgunblaðið/Hákon
Þúsundir manna mættu á Íslensku húðflúrsráðstefnuna, eða Icelandic Tattoo Convention, sem fór fram í átjánda sinn um síðustu helgi. Ráðstefnan var fyrst haldin árið 2006 og hefur stækkað mikið síðan þá

Þúsundir manna mættu á Íslensku húðflúrsráðstefnuna, eða Icelandic Tattoo Convention, sem fór fram í átjánda sinn um síðustu helgi. Ráðstefnan var fyrst haldin árið 2006 og hefur stækkað mikið síðan þá. Ráðstefnan fór fram í Gamla bíói þar sem 30 húðflúrarar komu víðs vegar að úr heiminum og flúruðu gesti og gangandi.

Össur Hafþórsson, eigandi Reykjavík Ink og skipuleggjandi ráðstefnunnar, sagði í samtali við mbl.is að ráðstefnan hefði gengið vonum framar. Össur sagði vindana hafa breyst gífurlega frá því að ráðstefnan var haldin í fyrsta sinn, þar sem nú sé samfélagslega ásættanlegra að vera með húðflúr en áður fyrr. „Að fá sér flott flúr er eins og að kaupa sér fallegan skartgrip,“ segir Össur.