Sviðslistakonurnar Steinunn Knúts Önnudóttir og Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir bjóða gestum í performatífar pílagrímsferðir um Vatnsmýrina í Reykjavík 12. og 14. júní kl. 14-16. „Í anda pílagrímsferða ganga þátttakendur til móts við sjálfa sig en í gegnum sviðsettar hugleiðingar, athuganir og önnur létt verkefni er sjónum beint að tengslum manns við umhverfi sitt. Gangan byrjar og endar við Norræna húsið og hentar öllum aldurshópum með allskonar getu,“ segir í viðburðarkynningu, en þar kemur fram að leiðsögnin sé á íslensku. Skráning í ferðina fer fram með tölvupósti á fallegt@fallegt.com. Allar nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vefnum fallegt.com.