Atvinnuleysi á landinu minnkaði í síðasta mánuði. Skráð atvinnuleysi í maí var 3,7%. Lækkaði það úr 3,9% í mánuðinum á undan. Í maí í fyrra var atvinnuleysið hins vegar öllu minna en nú, eða 3,4%.
Vinnumálastofnun (VMST) spáir því í nýútkominni mánaðarskýrslu um vinnumarkaðinn að áfram muni draga úr atvinnuleysi á landinu í yfirstandandi mánuði og að skráð atvinnuleysi verði 3,4% í júní.
Að meðaltali voru 7.697 einstaklingar skráðir atvinnulausir í maí, 4.449 karlar og 3.203 konur. 4.423 erlendir atvinnuleitendur voru þá án atvinnu og fækkaði um 270 frá apríl.
Mesta atvinnuleysið í maí var á Suðurnesjum en það minnkaði þó umtalsvert á milli mánaða, var 7% í apríl en fór niður í 6,1% í maí.
„Atvinnuleysi lækkaði alls staðar á landinu frá apríl, mest þó á Vestfjörðum þar sem það fór úr 3,4% í 2,2%. Atvinnuleysi var 3,2% á landsbyggðinni í maí og lækkaði úr 3,7% frá apríl.
Minnst var atvinnuleysið á Norðurlandi vestra eða 1,2% og 1,8% á Austurlandi,“ segir í skýrslu VMST.
Aðeins á einu svæði á landinu, á Suðurlandi, mældist atvinnuleysi minna á meðal karla en kvenna en þar voru 2,9% karla án atvinnu en 3,5% kvenna.
„Mestur var munurinn á atvinnuleysinu á Austurlandi þar sem atvinnuleysi karla var 2,2% en atvinnuleysi kvenna 1,4% og á höfuðborgarsvæðinu þar sem atvinnuleysi karla var 4,2% en atvinnuleysi kvenna 3,6%,“ segir í skýrslunni.
Sjá má að þeim sem hafa verið atvinnulausir í heilt ár eða lengur hefur fjölgað frá sama tíma í fyrra. Alls höfðu 1.506 atvinnuleitendur verið án atvinnu í meira en 12 mánuði í lok maí sl. en í maí í fyrra var fjöldi þeirra hins vegar 1.255 og nemur fjölgunin 251 á milli ára. omfr@mbl.is