Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Svör Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á þingi í gær vöktu athygli, en þá spurði Bergþór Ólason, þingflokksformaður Miðflokksins, ráðherra hvort hann hefði gert sömu athugasemdir í ríkisstjórn við frumvarp Ingu Sæland félagsmálaráðherra um vísitölutengingu bóta almannatrygginga og fram komu í gagnrýninni umsögn hans til velferðarnefndar.
Ráðherrann svaraði að ráðuneytið hefði sett fram þessar athugasemdir, sem hefðu snúið að fyrirsjáanleika þróunar útgjaldanna.
„Þessi ófyrirsjáanleiki var fyrirséður og á hann var lagt mat,“ svaraði ráðherra m.a. og bætti við:
„Ég styð þetta frumvarp sem hæstv. félagsmálaráðherra hefur lagt fram, hef stutt og mun styðja.“
Bergþór rengdi orð fjármálaráðherra um að ófyrirsjáanleikinn hefði verið metinn með því að vitna í umrædda umsögn um „að ekki [lægju] fyrir fullnægjandi greiningar á áhrifum breytingarinnar …“
Bergþór gerði þó ekki mikið úr þeim orðum ráðherra í ræðustól Alþingis, en fann að öðru:
„Ef þetta er allt svona ásættanlegt og hæstv. ráðherra styður þetta mál eins og það liggur hér fyrir, hvers vegna sendi þá ráðherrann þetta minnisblað? Ráðherrann lætur að því liggja að fjármálaráðuneytið sé eitthvað alveg ótengt hæstv. fjármálaráðherra. Fjármálaráðuneytið er í raun auðvitað bara skrifstofa hæstv. fjármálaráðherra og það fer ekkert plagg frá fjármálaráðuneytinu öðruvísi en að það sé í sátt við skoðun og afstöðu hæstv. ráðherra þannig að þá teiknast upp sú mynd að þetta sé einhvers lags sýndarmennskuminnisblað.“
Ráðherra svaraði því til að þeir Bergþór væru ljóslega ósammála um hlutverk stjórnsýslunnar. „Ég stend fyrir heiðarlegri stjórnsýslu,“ sagði Daði Már.