Útför Víglundar Þorsteinssonar frá Haukholtum fór fram í Skálholtsdómkirkju að viðstöddu margmenni í gær. Hann var jarðsettur í Hruna en séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, sóknarprestur í Hrunaprestakalli, sá um útförina.
Víglundur fæddist á Landspítalanum 12. maí 2015 og var að ljúka fjórða bekk í Flúðaskóla er hann lést af slysförum 28. maí síðastliðinn. Víglundur var næstelstur fjögurra systkina. Foreldrar hans eru Þorsteinn Loftsson, bóndi og smiður, og Steinunn Lilja Svövudóttir, bóndi og matreiðslumaður.
Söfnun til stuðnings fjölskyldu Víglundar heitins stendur yfir og er það Kvenfélag Hrunamannahrepps sem heldur utan um söfnunina en reikningsupplýsingar eru eftirfarandi: 0325-22-001401, og kennitala: 700169-7239.