Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) segir boðaðar skattahækkanir draga úr samkeppnishæfni Íslands á ferðaþjónustumarkaði.
Í nýrri skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar kemur fram að til standi að boða skattahækkanir á erlenda ferðamenn hérlendis.
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, telur að í árferði sem þessu, þar sem tollahækkanir eru tíðar og alþjóðaviðskiptakerfið óstöðugt, eigi að reyna að auka samkeppnishæfni atvinnugreina innanlands en ekki öfugt. „Við höfum bent á að öll ný skattlagning geti dregið úr samkeppnishæfni,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Jóhannes segir væntanlegar skattahækkanir af ferðaþjónustu ekki munu skila sér í hagkerfið. Að sögn hans verða skatttekjur við skattahækkanir til lengri tíma litið minni en ef virðisaukaskattsprósentan myndi haldast lægri.