Kleppjárnsreykir Nýja skólahúsið fremst á myndinni. Verður tekið í notkun að hluta í haust og allt um áramót.
Kleppjárnsreykir Nýja skólahúsið fremst á myndinni. Verður tekið í notkun að hluta í haust og allt um áramót. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Bygging á nýju skólahúsnæði á Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal í Borgarfirði miðar vel að sögn Guðveigar Lindar Eyglóardóttur, forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Áformað er að hluti af nýbyggingunni verði tekinn í notkun strax í upphafi næsta…

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Bygging á nýju skólahúsnæði á Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal í Borgarfirði miðar vel að sögn Guðveigar Lindar Eyglóardóttur, forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar. Áformað er að hluti af nýbyggingunni verði tekinn í notkun strax í upphafi næsta skólavetrar, yfirstandandi áfanga verði svo að fullu lokið í janúar 2026. Í framhaldi er stefnt á endurbætur á hluta af núverandi húsnæði ásamt hönnun og frágangi á skólalóð.

Skólahús fyrir 150 börn

Byggingarfélagið Sjammi hefur framkvæmdirnar á Kleppjárnsreykjum með höndum en áætlað er að þær kosti sveitarfélagið liðlega einn milljarð króna.

Á Kleppjárnsreykjum eru leik- og grunnskóli undir sama þaki. Í grunnskóladeildinni eru í dag um 90 nemendur. „Mikil tilhlökkun er fyrir nýju glæsilegu skólahúsnæði og mun skólinn geta tekið um 150 börn þegar nýframkvæmdum og endurbótum er lokið. Nýtt eldhús, mat- og samkomusalur, bókasafn, kennslustofur og aðstaða fyrir starfsmenn skólans verður til húsa í nýbyggingunni,“ segir Guðveig Lind og heldur áfram.

„Við ákváðum að hafa vaðið fyrir neðan okkur og byggja frekar stærra hús en minna enda er íbúum í uppsveitum að fjölga. Þessi framkvæmd er stefnumótandi og endurspeglar trú okkar á vexti og framtíð dreifbýlisins í sveitarfélaginu.“

Bæta íþróttamannvirki í Borgarnesi

Um þessar mundir er unnið að margvíslegum framkvæmdum öðrum á vegum Borgarbyggðar. Þar ber hæst byggingu fjölnota knatthús í Borgarnesi. Í framhaldinu stendur svo til að stækka íþróttamiðstöðina í bænum og reisa hús með parketgólfi, ætlað boltaíþróttum.

„Þessar miklu framkvæmdir í Borgarbyggð nú eru svar við íbúafjölgun hér. Við upphaf yfirstandandi kjörtímabils núverandi sveitarstjórnar voru íbúar í Borgarbyggð um 3.800 en eru nú 4.368. Þessi fjölgun nær til allra svæða innan sveitarfélagsins. Þess vegna m.a. erum við að byggja nýtt skólahús á Kleppjárnsreykjum og satt að segja man ég ekki eftir mörgum sveitarfélögum öðrum sem veðja á dreifbýlið með því móti. Í flestum tilvikum úti í sveitum landsins eru skólarnir í gömlum byggingum á meðan við byggjum nýtt,” segir Guðveig.

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson