Héðinn Már Hannesson fæddist í Reykjavík 11. júní 2003. Hann lést 21. maí 2025.

Foreldrar hans eru Hannes Ingi Guðmundsson, lögfræðingur, f. 30.9. 1963, og Ingibjörg Elísabet Jóhannsdóttir, hársnyrtir og dagforeldri, f. 21.9. 1972. Héðinn var næstyngstur í hópi fjögurra systkina. Elst er Andrea Björk, f. 10.6. 1988, samfeðra, móðir Hjördís Kjartansdóttir, en börn Hannesar og Ingibjargar eru auk Héðins Jóhann Snær, f. 3.8. 1996, og Regn, f. 25.9. 2007.

Héðinn ólst upp í Vesturbænum og gekk í Granda- og Hagaskóla. Hann lauk stúdentsprófi á tölvubraut frá Tækniskólanum vorið 2024 og stefndi á framhaldsnám í Svíþjóð. Héðinn var hæfileikaríkur, fjölhæfur og duglegur, átti mjög gott með nám og var vinamargur. Hann var efnilegur í fótbolta og spilaði í mörg ár með yngri flokkum KR. Þegar fjölskyldan dvaldist eitt ár á Tenerife var Héðinn kominn með samning við spænskt unglingalið á Tenerife en vegna covid náði hann einungis að spila með þeim stuttan tíma.

Seinustu árin átti tónlistin hug hans allan og var hann sjálflærður á gítar, bassa og hljómborð auk þess sem hann samdi lög og texta. Héðinn Már tók þátt í Músíktilraunum árið 2023 með hljómsveitinni Marzipan sem fór í úrslit og var valin Hljómsveit fólksins. Hann stofnaði síðan tónlistarklúbb í Tækniskólanum ásamt skólafélögum sínum. Hann hélt utan um klúbbinn og hélt tónleika með samnemendum sínum í Tækniskólanum þar sem hann kom fram sjálfur með frumsamin lög og var auk þess hljóðmaður fyrir samnemendur. Héðinn var mikill náttúruunnandi og naut sín vel í náttúrunni.

Útför Héðins fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 11. júní 2025, klukkan 13.

Streymi má finna á
www.mbl.is/utfarir-i-dag.

Elsku drengurinn minn. Mig skortir orð til þess að lýsa líðan minni. Þú sem varst svo klár og hæfileikaríkur, sjálfstæður og vinamargur. Þú áttir eftir að gera svo margt, ferðast og skoða heiminn og fleira. Þú spilaðir á gítar, sjálflærður, spilaðir á hljómborð, samdir texta, lög og söngst. Tónlistin átti hug þinn allan. Ég man þegar þú komst í pössun, þegar ég bjó í Þorlákshöfn. Það var fyrir jól og eru ansi mörg ár síðan. Þú og Gíslný frænka þín skreyttuð piparkökur og fóruð svo út að gera snjókall.

Við verðum að trúa að þér líði betur og sért laus við verkina. Þetta eru sár sem gróa eða ekki. Söknuðurinn er mikill, sorgin svo djúp. Erfitt að sætta sig við að þú sért farinn og komir ekki aftur. Þú ert kannski búinn að hitta afa þína og ömmu þína. Hvíldu í friði elsku drengurinn minn.

Inga mín, Hannes, Jóhann, Regn og Andrea, sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.

Amma Gíslný.

Með mikilli sorg í hjarta langar okkur að minnast Héðins okkar. Hann var allra hugljúfi, hæglátur, mjög sjálfstæður stórglæsilegur með sitt fallega bros,

Hann var með eindæmum stríðinn og elskaði að bregða mér með ýmsum látbrigðum. Námið lék í höndum hans enda bráðvel gefinn og efnilegur strákur.

Á yngri árum var hann hjá mér í pössun og var algjör sólargeisli, alltaf glaður og vissi ekkert skemmtilegra ef ég tók mig til og bakaði, þá beið hann mjög spenntur eftir því að verða fyrstur til að fá kræsingarnar Hann elskaði að vera á róló með börnunum og var á fleygiferð að leika sér.

Hann byrjaði í fótbolta í KR ungur að árum og spilaði í mörg ár með félaginu. Pabbi hans var hans helsti stuðningsmaður og var ávallt til staðar fyrir hann hvort sem um var að ræða, æfingar, keppnisleiki, fótboltaferðir innan- eða utanlands og leiðbeindi hann honum eftir bestu getu.

Hann var mikill náttúrunnandi og naut sín best úti í náttúrunni og kleif þó nokkur fjöllin með mömmu sinni, fór í gönguferðir og í sund. Hann var sá eini sem tókst að plata mömmu sína í sund. Hann var einstaklega hæfileikaríkur, spilaði á gítar, söng, samdi texta og lög, ásamt sínum besta vini.

Elsku hjartans vinir okkar, systkini og aðrir aðstandendur, þetta eru þung spor sem á ykkur er lagt. En tónlistin hans Héðins okkar lifir áfram með okkur ásamt yndislegum og fallegum minningum sem hann skapaði á sinni ævi.

Sendi ykkur allan okkar kærleik og ljós. Megi allir góðir vættir vernda ykkur og styrkja í þessari erfiðu raun sem þið gangið í gegnum, elsku bestu vinir okkar.

Minning þín er mér ei gleymd;

mína sál þú gladdir;

innst í hjarta hún er geymd,

þú heilsaðir mér og kvaddir.

(Káinn)

Ykkar vinir,

Álfhildur og Þórarinn (Alla og Tóti).

Héðinn Már var góður vinur og drífandi listamaður.

Hann var einn helsti drifkrafturinn í hljómsveitinni okkar Marsipan og að vinna með honum dró fram sköpunarkraft hjá okkur öllum. Hann hafði æft á gítar í eitt ár þegar við byrjuðum að spila saman en hljómaði eins og þrautþjálfaður gítarmeistari.

Hann var hvetjandi og kynnti okkur sinn frábæra tónlistarsmekk, t.d. Mac Miller, og mörg lög eins og I’d Love To Change The World með Ten Years After og Little Black Submarines með The Black Keys.

Hann samdi einnig eigin lög og hafði alltaf eitthvað uppbyggilegt til málanna að leggja þegar við vorum að semja öll saman, sem var oft.

Hann var mjög hæfileikaríkur, til dæmis þegar það vantaði bassaleikara þá tók hann það að sér og brilleraði í því þrátt fyrir að hafa aldrei áður snert það hljóðfæri.

Hann hafði mikil og góð áhrif á okkur öll og við áttum mjög góða tíma saman.

Elsku vinur, minning þín mun lifa í hugum og hjörtum allra sem fengu að kynnast þér.

Guðrún Gígja
Vilhjálmsdóttir,
Ragnar Ágúst Ómarsson, Bjartur Sigurjónsson, Þorgeir Atli Kárason.