Karlmaður er látinn eftir stórfellda líkamsárás sem framin var í Samtúni í Reykjavík um þarsíðustu helgi. Maðurinn var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann og lést hann þar af sárum sínum um nýliðna helgi

Karlmaður er látinn eftir stórfellda líkamsárás sem framin var í Samtúni í Reykjavík um þarsíðustu helgi. Maðurinn var fluttur alvarlega slasaður á Landspítalann og lést hann þar af sárum sínum um nýliðna helgi. Ekki hefur verið greint frá nafni hins látna.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var manninum ýtt niður tröppur. Rannsókn málsins er sögð á frumstigi og var um tíma einn í haldi í tengslum við málið. Honum hefur nú verið sleppt.