Lokað Kastrup við Hverfisgötu hefur verið lokaður í rúman mánuð.
Lokað Kastrup við Hverfisgötu hefur verið lokaður í rúman mánuð.
Mikil óánægja er meðal veitingamanna vegna seinagangs við leyfisveitingar í Reykjavík. Morgunblaðið greindi á laugardag frá því að eigendur bakarísins Hygge hefðu beðið í 200 daga eftir því að fá rekstrarleyfi á Barónsstíg og fleiri staðir hafa…

Mikil óánægja er meðal veitingamanna vegna seinagangs við leyfisveitingar í Reykjavík. Morgunblaðið greindi á laugardag frá því að eigendur bakarísins Hygge hefðu beðið í 200 daga eftir því að fá rekstrarleyfi á Barónsstíg og fleiri staðir hafa þurft að sætta sig við óþarfar tafir á leyfisveitingu af sömu sökum. Þar á meðal eru kaffihús Starbucks og nýr staður sem til stendur að opna þar sem skemmtistaðurinn b5 var áður. Þá hafa nýir rekstraraðilar á stöðunum Drunk Rabbit og Kastrup sömuleiðis þurft að sæta sömu skilmálum þó ekkert hafi breyst í rekstri þeirra er snýr að matvælaöryggi. » 2