Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
Tíu létu lífið eftir að maður hóf skothríð í framhaldsskóla í austurrísku borginni Graz í gær. Þeir látnu voru nemendur við skólann, fullorðinn einstaklingur og grunaður byssumaður en maðurinn er talinn hafa svipt sig lífi eftir skotárásina. Tólf manns hlutu alvarlega áverka í árásinni.
Christian Stocker, kanslari Austurríkis, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg í landinu til að minnast fórnarlambanna.
Níu voru úrskurðaðir látnir á vettvangi en ein kona lést síðar af sárum sínum á sjúkrahúsi skömmu eftir árásina. Árásarmaðurinn er sagður hafa verið fyrrverandi nemandi við skólann en að sögn innanríkisráðherra Austurríkis hafði hann ekki lokið námi sínu við skólann. Hann er talinn hafa verið einn að verki en lögregla rannsakar nú hvaða hvatar lágu að baki árásinni. Maðurinn var 21 árs og er sagður hafa verið frá Austurríki.
Íbúar Austurríkis eru harmi slegnir vegna árásarinnar en árásir á almenna borgara eru afar sjaldgæfar í Austurríki. Tæplega 10 milljónir búa í landinu.
Hátt í 400 nemendur eru skráðir í skólann og eru nemendurnir börn á aldrinum 14 til 18 ára. Búið er að leggja blómvendi og kerti fyrir framan skólann til að minnast fórnarlambanna.
AFP-fréttastofan ræddi við einn íbúa í Graz sem á börn í grunnskóla og leikskóla í nágrenni við framhaldsskólann þar sem árásin var gerð. Íbúinn kvaðst vera „í áfalli“ eftir árásina og að þetta væri „mikið að meðtaka“ fyrir íbúa svæðisins.
Kanslari Austurríkis lýsti skotárásinni sem „þjóðarharmleik“ og að dagurinn væri „svartur dagur“ í sögu Austurríkis. Þjóðleiðtogar Evrópuríkja hafa sent íbúum Austurríkis og aðstandendum fórnarlambanna samúðarkveðjur í kjölfar skotárásarinnar.