Göngumaðurinn sem leitað hafði verið að á Esjunni frá því á mánudagskvöld fannst látinn síðdegis í gær. Hann fannst í hlíðum Kistufells í Esju. Umfangsmikil leit hófst á mánudagskvöld á Esju og í nágrenni þegar Slysavarnafélaginu Landsbjörg barst…
Birta Hannesdóttir
birta@mbl.is
Göngumaðurinn sem leitað hafði verið að á Esjunni frá því á mánudagskvöld fannst látinn síðdegis í gær. Hann fannst í hlíðum Kistufells í Esju.
Umfangsmikil leit hófst á mánudagskvöld á Esju og í nágrenni þegar Slysavarnafélaginu Landsbjörg barst tilkynning frá fólki sem var farið að lengja eftir manninum.
Allar tiltækar björgunarsveitir á suðvesturhorninu tóku þátt í leitinni. Auk þess sem gönguhópar leituðu mannsins voru drónar, fjórhjól og þyrla Landhelgisgæslunnar notuð við leitina.
Höf.: Birta Hannesdóttir