Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Álag hjá embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum (LSS) hefur aukist verulega, bæði vegna ágangs við landamærin á Keflavíkurflugvelli og vegna skipulagðrar brotastarfsemi.
Frávísanir hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári. Húsnæðisaðstaða er bæði þröng og óviðunandi. LSS hefur aldrei lagt hald á meira magn af kókaíni en það sem af er árinu 2025. Gæsluvarðhaldskröfur hafa aldrei verið fleiri en á síðasta ári. Aftur á móti hafa lærðir lögreglumenn ekki verið færri hjá embættinu frá árinu 2019. „Það eitt og sér, samhliða ógn skipulagðrar brotastarfsemi, verður að teljast mikil ógn,“ segir í minnisblaði Margrétar Kristínar Pálsdóttur, setts lögreglustjóra á Suðurnesjum, til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um stöðuna á landamærunum ásamt fjölmörgum tillögum um úrbætur.
Bendir hún á að rík áhersla á eftirlit með skipulagðri brotastarfsemi og landamæraeftirlit hafi skilað miklum árangri en brýn nauðsyn sé á að bregðast við uppgangi glæpahópa með hertum aðgerðum. „Skipulögð brotastarfsemi er að mati LSS í örum vexti hér á landi þar sem Ísland er, í rauntíma, vettvangur skipulagðrar brotastarfsemi samhliða öðrum löndum Evrópu en um er að ræða verulega ábatasama iðju,“ segir í minnisblaðinu.
Skipulagðir brotahópar nýti sér veikleika í regluverki og opinberri stjórnsýslu. „Þess eru fjölmörg dæmi að aðilar sem koma að landamærum á Keflavíkurflugvelli og til stendur að frávísa eða hefur verið frávísað frá landinu bera fram umsókn um alþjóðlega vernd til að komast hjá frávísun, sem þeir og gera á grundvelli laga og verklagsreglna í slíkum málum. Í einhverjum tilvikum hefur jafnframt komið fyrir að aðilar sem svo háttar til um draga svo til baka umsókn um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun og eru þar með komnir inn í landið á eigin ábyrgð og gefinn frestur til að yfirgefa landið eða að aðilar skili sér hreinlega ekki í móttökumiðstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Domus úr FLE og hverfa þar með alfarið inn í landið.“
Embættið glímir við miklar áskoranir en fram kemur að frá 2020 til 2024 hafa 88 menntaðir lögreglumenn látið af störfum hjá embættinu. Það sé ekki samkeppnishæft um starfsfólk sem búsett er á höfuðborgarsvæðinu og samkeppni sé um fólk þar sem mörg störf eru í boði á Keflavíkurflugvelli.
Stefnir í sögulegan fjölda
Hegningarlagabrot hafa aldrei verið fleiri hjá LSS en á árinu 2024. „Þá vekur sérstaka athygli að stórfelldum fíkniefnalagabrotum hefur fjölgað jafnt og þétt frá árinu 2022 og stefnir nú í sögulegan fjölda slíkra mála á þessu ári,“ segir í minnisblaðinu. Var fjöldi mála 1.093 í fyrra og er orðinn 438 á þessu ári.
„Peningaþvættismál og haldlagning fjármuna vegna ætlaðra tollalagabrota og tengsla við skipulagða brotastarfsemi hefur aukist verulega síðustu ár og árin 2023 og 2024 hefur fjöldi þeirra margfaldast. Athygli vekur að það sem af er árinu 2025 hefur málunum aftur fækkað og má ætla að ein af skýringum þess sé sú að aðilar leiti annarra leiða en að flytja fjármuni/reiðufé í gegnum Keflavíkurflugvöll og hins vegar að vegna gríðarlegs álags á landamærum, m.a. vegna innflutnings fíkniefna, hefur hreinlega ekki verið hægt að sinna þessu eftirliti sem skyldi og rannsóknum eins hratt og vel og vænlegt er. Nú er á vörslureikningum embættisins, haldlagt fé, upp á um 150.000.000 kr. Þá hafa þegar verið gerðar upptækar rúmlega 50.000.000 kr. með endanlegum dómi.“
Það sem af er árinu 2025 eru að jafnaði 18,6 gæsluvarðhaldsfangar í fangelsum á hverjum degi að kröfu LSS. 4. júní sl. voru 23 í gæsluvarðhaldi á vegum LSS, allir með erlent ríkisfang.