Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vænta má að Laugavegurinn, leiðin milli Landamannalauga og suður í Þórsmörk, verði orðinn fær göngufólki nú í vikulokin. Eftir fremur snjóléttan vetur opnast leiðin nú öllu fyrr en gerist í meðalári; en það hefur oft verið í kringum þjóðhátíðardaginn 17. júní.
„Þetta er allt að koma,“ segir Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Laugavegurinn er í umsjón þess félags sem á jafnframt skálana sem við leiðina standa. Sitt á hvorum enda eru þar byggingar í Landmannalaugum og Skagfjörðsskáli í Þórsmörk. Svo eru á festinni skálar í Hrafntinnuskeri og Hvanngili, sem opnaðir verða í vikunni. Sunnar eru skálar við Álftavatn og í Emstrum og þangað er gæslufólk þegar komið og tilbúið að taka á móti ferðalöngum.
„Eftir veturinn er mikil vinna og heilmikið bras að standsetja skála. Því sinna meðal annars öflugir sjálfboðaliðar okkar og fóstrar sem tilheyra hverjum skála. Nú er þetta allt orðið klárt og leiðin er greið. Þó veit ég að enn eru einhverjir skaflar í laugum, giljum og drögum sem þó gengur hratt á þegar sólin skín,“ segir Páll.
Talið er að 13.000-15.000 manns gangi Laugaveginn á ári hverju. Erlendis er gönguleiðin þekkt í hópi fjallamanna. Kemur þar meðal annars til umfjöllun og viðurkenning sem þessar slóðir hafa fengið í tímaritinu National Geographic og víðar.