Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Göngubrúin yfir Mógilsá á Esjunni var opnuð aftur fyrir umferð í fyrradag, annan í hvítasunnu, eftir endurbætur.
Daginn áður, á hvítasunnudag, átti blaðamaður leið um svæðið og rakst þá á tvo menn sem voru að vinna við verkið. Þeir reyndust vera bræðurnir Ævar og Örvar Aðalsteinssynir en þeir voru þá að leggja nýtt brúargólf.
Eins og sjá má á myndunum hér til hliðar var ágætisveður á Esjunni á hvítasunnudag og mun betra veður en í vikunni á undan þegar mjög kalt var í veðri og vindasamt.
„Það var gott veður um helgina og fjöldi fólks á ferð,“ segir Örvar. „Við urðum að hætta að vinna tvo daga í vikunni áður enda var ekki hægt að vinna. Það var svo hvasst. Þótt veður geti verið þokkalegt í bænum verður oft svo hvasst uppi á Kjalarnesi og miklir sviptivindar niður fjallið,“ segir Örvar til skýringar.
Opnaði aðra leið
„Brúin er við Mógilsá sem gönguleiðin vinsæla liggur upp með. Ég held að ég fari rétt með að brúin hafi verið sett upp snemma á níunda áratugnum. Ferðafélag Íslands stóð fyrir því á sínum tíma og með því opnaðist önnur leið. Göngumenn höfðu þá jafnan gengið upp vestan við ána og gera það enn. Með brúnni komst á þessi hringur en með henni var hægt að ganga upp Esjuna í minni halla, þægilegri leið sem var stundum kölluð Ferðafélagsleiðin, upp að Steini. Margir ganga upp öðrum megin en fara niður hinum megin. Fara þá upp Einarsmýrina, sem er brattari leiðin að vestanverðu, og ganga svo niður þessa leið og koma yfir brúna til baka,“ segir Örvar.
Skógræktarfélag Reykjavíkur stendur fyrir viðgerðinni og hefur umsjón með gönguleiðunum upp að Steini en timbrið kemur úr skóginum í Heiðmörk. Örvar segir allt timbur hafa verið fjarlægt og endurnýjað að frátöldum gömlu límtrésbitunum sem voru upphaflega fluttir þangað með þyrlu og settir yfir gilið. Verklok séu áformuð eftir hálfan mánuð en brúin er að hans sögn opin og gönguhæf.