Los Angeles Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hyggst kæra bandaríska ríkið vegna ákvörðunar Trumps.
Los Angeles Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hyggst kæra bandaríska ríkið vegna ákvörðunar Trumps. — AFP/Ronaldo Schemidt
Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst senda 2.000 þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles til að reyna að koma böndum á fjöldamótmælin sem staðið hafa yfir í borginni síðustu daga. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær sagði Trump ekki útilokað…

Birta Hannesdóttir

birta@mbl.is

Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst senda 2.000 þjóðvarðliða til viðbótar til Los Angeles til að reyna að koma böndum á fjöldamótmælin sem staðið hafa yfir í borginni síðustu daga. Á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í gær sagði Trump ekki útilokað að hann myndi beita lagaákvæði frá árinu 1807 sem heimilar honum að kalla út bandaríska herinn á landsvísu og að gera þjóðvarðlið einstakra ríkja Bandaríkjanna að alríkissveitum.

Með þessum lögum getur herinn sinnt löggæslustörfum á borð við að framkvæma leitir og handtökur.

Forsetinn hyggst nota þetta ákvæði ef óeirðirnar í Los Angeles leiða til uppreisnar.

Lögunum hefur verið beitt 30 sinnum frá því að þau voru fyrst samþykkt en það var George H.W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sem beitti lögunum síðast en það var árið 1992 vegna óeirða sem brutust út í LA.

Lagði fram neyðarbeiðni

Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefur lagt fram neyðarbeiðni fyrir alríkisdómstól Bandaríkjanna til að reyna að koma í veg fyrir að ríkisstjórn Trumps haldi áfram að senda inn þjóðvarðliða í ríkið án hans samþykkis. Cherles R. Breyer, yfirdómari við alríkisdómstólinn, hafnaði beiðninni seint í gærkvöldi en boðaði til þinghalds á morgun um málið. Newsom hefur sagt Trump hella olíu á eldinn með því að senda inn þjóðvarðliðið. Newsom hefur áður greint frá því að hann ætli að kæra alríkið vegna ákvörðunar Trumps.

Mótmælin í LA hófust á föstudaginn í síðustu viku en tilefni þeirra var aukin vinna innflytjenda- og tollalögreglu Bandaríkjanna, ICE, við að handtaka ólöglega innflytjendur í borginni. Mótmælin leiddu til óeirða í einu hverfi borgarinnar á sunnudag.

Höf.: Birta Hannesdóttir