Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virkjaði í gærkvöldi viðbragð vegna kennsluflugvélar sem missti nefhjól í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum. Hjólið lenti við Austurvöll. Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn…

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virkjaði í gærkvöldi viðbragð vegna kennsluflugvélar sem missti nefhjól í aðflugi að Reykjavíkurflugvelli á sjöunda tímanum. Hjólið lenti við Austurvöll. Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Morgunblaðið.

Vélin lenti á Reykjavíkurflugvelli og þeir tveir farþegar sem voru um borð eru heilir á húfi.