Hugarleikfimi Byggi gáturnar upp með ríflegum orðaforða, segir Bragi um aukastarf sitt til hálfrar aldar.
Hugarleikfimi Byggi gáturnar upp með ríflegum orðaforða, segir Bragi um aukastarf sitt til hálfrar aldar. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Að ráða krossgátu þarf að vera dægradvöl en líka svolítill lærdómur í íslensku,“ segir Bragi V. Bergmann á Akureyri. Í um hálfa öld hefur hann fengist við krossgátugerð og hefur sú smíði hans birst í blöðum á Norðurlandi og víðar

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

„Að ráða krossgátu þarf að vera dægradvöl en líka svolítill lærdómur í íslensku,“ segir Bragi V. Bergmann á Akureyri. Í um hálfa öld hefur hann fengist við krossgátugerð og hefur sú smíði hans birst í blöðum á Norðurlandi og víðar. Gáturnar eru vinsælar og þau eru líka ótrúlega mörg sem hafa gaman af glímu við margræði málsins og fylla út í reitina. Komast nokkuð áleiðis með krossgátuna yfir kaffibolla að morgni en stranda þá á því að skilja nokkur orð. Þegar síðan er sest niður að kvöldi gengur gátan upp í hvelli!

„Strax sem strákur fór ég að ráða svona gátur og þótti góður. Þetta vakti eftirtekt fjölskylduvinar sem kenndi mér nokkur trix sem komu mér á sporið. Krossgátur sem ég gerði fyrir ýmis blöð skiluðu mér pening og með annarri vinnu komst ég í gegnum háskólann án þess að þurfa að taka námslán,“ segir Bragi. Hann er kennari að mennt, var ritstjóri og blaðamaður í allmörg ár en hefur lengst starfað við almannatengsl hjá Fremri – fyrirtæki sínu.

Alltaf handskrifað

Við krossgátugerð er byrjað í efstu línunni og færir gátusmiðurinn sig neðar. AR sem merkir rykkorn er algengt orð í krossgátum og einnig sömu stafir í hina áttina, RA, en svo heitir egypski sólkonungurinn.

„Ég reyni að byggja gáturnar upp með ríflegum orðaforða. Ég gríp heldur aldrei til ódýrra lausna eins og að sleppa stöfum úr orðum, koma með erlend tökuorð eða nota frasa. Þá handskrifa ég alltaf krossgáturnar svo þær haldi persónulegum blæ, sem hyrfi ef ég færi að setja þetta upp í tölvu. Þetta þarf að vera leikfimi fyrir hugann,“ segir Bragi.

Gátur í brúðkaup og skírnir

Í gær var Bragi að semja gátu nr. 682 fyrir Dagskrána, auglýsingablað sem gefið er út á Akureyri, og þá nr. 574 fyrir Vikublaðið, fréttablað á Norðurlandi. Tilfallandi eru svo krossgátur sem Bragi setur saman fyrir blöð ýmissa félaga.

„Ég hef stundum fyrir brúðkaup verið fenginn til að útbúa krossgátur sem eru í raun samkvæmisleikur þar sem finna á út og fylla í reiti sitthvað er varðar hjónin. Þetta hefur gert stormandi lukku og eins gátur fyrir skírn barna. Þá fæ ég fyrir fram að vita hjá foreldrunum hvaða nafn barninu verði gefið og út frá því geri ég gátu í léttum dúr.“

Höf.: Sigurður Bogi Sævarsson