Fýluferð Greta Thunberg kaus að halda aftur heim skömmu seinna.
Fýluferð Greta Thunberg kaus að halda aftur heim skömmu seinna.
Stjórnvöld í Ísrael hafa vísað sænska aðgerðasinnanum Gretu Thunberg úr landi eftir mislukkaða tilraun til að ná landi á Gasaströndinni. Ætlaði hún að færa fólki þar hjálpargögn ásamt nokkrum fylgismönnum sínum

Stjórnvöld í Ísrael hafa vísað sænska aðgerðasinnanum Gretu Thunberg úr landi eftir mislukkaða tilraun til að ná landi á Gasaströndinni. Ætlaði hún að færa fólki þar hjálpargögn ásamt nokkrum fylgismönnum sínum. Thunberg samþykkti að yfirgefa Ísrael að beiðni stjórnvalda í kjölfar handtöku en nokkrir félagar hennar neituðu. Verða þeir því áfram í haldi lögreglu og bíða niðurstöðu í sínu máli.

Leiðangur Thunberg hefur af mörgum verið gagnrýndur nokkuð og hún meðal annars sökuð um að vera tækifærissinni sem hefur þann tilgang einan að vekja athygli á sjálfum sér. Thunberg hefur ekki viljað svara þessu.

Meðfylgjandi er mynd sem tekin var af Thunberg þar sem hún situr í flugvél á leið frá Ísrael.