Flóki Larsen
floki@mbl.is
„Mannkynið hefur of lengi tekist á við loftslagsmál eins og þau séu vandamál framtíðarkynslóða. Loftslagshamfarir hafa hins vegar þegar gengið í garð. Því verður að bregðast við strax.“
Þetta sagði Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra á stofnfundi nýrrar samevrópskrar nefndar um loftslagsbreytingar og lýðheilsumál á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar.
Katrín er formaður nefndarinnar. Stofnfundur hennar var haldinn í Hörpu í gær.
Meðfram öðrum verkefnum
Katrín segir skýr tengsl vera milli loftslagsmála og heilbrigðismála. Loftslagsmálin telur hún hins vegar hafa fallið í skugga stríðsátaka undanfarið. Þetta kom fram í samtali Katrínar við Morgunblaðið. Hún segir málaflokkana alla tíð hafa staðið sér nærri. Því sé hún spennt fyrir því að nálgast þá á alþjóðavettvangi.
Katrín segir að formennska nefndarinnar sé ekki fullt starf og því muni hún sinna hlutverkinu meðfram öðrum störfum.
Ásamt Katrínu tóku til máls dr. Hans Henri P. Kluge, svæðisstjóri Evrópu fyrir WHO, og prófessor Sir Andrew Haines, helsti ráðgjafi nefndarinnar í heilbrigðismálum.