Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Benedikt Jóhannesson, fv. fjármálaráðherra og stofnandi Viðreisnar, leggst eindregið gegn frumvarpi Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra Viðreisnar, um svokallaða víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna. Í 12 blaðsíðna umsögn til Alþingis segir hann frumvarpið fela í sér „eignaupptöku“ frá ellilífeyrisþegum til örorkulífeyrisþega, sem sé bæði ósanngjörn og óábyrg.
Frumvarpið felur í sér að greiðslur almannatrygginga til örorkulífeyrisþega leiði ekki lengur til lægri greiðslna úr lífeyrissjóðum.
Hann bendir á að með því að taka ekki tillit til greiðslna frá Tryggingastofnun (TR) við útreikning lífeyris fái margir örorkulífeyrisþegar í raun hærri tekjur eftir starfsorkutap en áður. Af útreikningum Benedikts að dæma hagnast liðlega 40% örorkulífeyrisþega á því, sumir um hundruð þúsunda króna á mánuði. Það segir hann stríða gegn því grundvallarsjónarmiði að enginn skuli vera fjárhagslega betur settur eftir tjón en fyrir.
Þyngst fyrir sjóði verkafólks
Að sögn Benedikts mun aukinn kostnaður vegna hærri örorkulífeyris óhjákvæmilega bitna á ellilífeyrisgreiðslum. Það komi verst við „örorkuþyngstu“ lífeyrissjóðina, eins og Festu, Gildi og Lífeyrissjóð Vestmannaeyja, sem verkafólk og sjómenn eigi helst aðild að.
Benedikt telur að tryggingafræðileg staða þessara sjóða geti versnað um allt að 5-7%, sem leiði til verulegrar skerðingar á ellilífeyri.
„Þannig felur frumvarpið í sér tilfærslu frá ellífeyrisþegum til örorkulífeyrisþega og í raun eignaupptöku,“ segir Benedikt. Það grafi undan trausti á kerfinu og veiki almenn réttindi eftirlaunafólks.
Hann varar einnig við því að breytingin dragi úr hvata öryrkja til að snúa aftur á vinnumarkað, og rýri árangur sem náðst hefur í endurhæfingu og atvinnuþátttöku síðustu ár.
Í umsögninni gagnrýnir Benedikt vinnubrögðin við undirbúning frumvarpsins, sem hann segir hafa farið fram án nægilegs samráðs við lífeyrissjóði og án þess að grundvallaráhrif breytinganna væru dregin fram í greinargerð.
Að lokum varar hann við því að áætlanir um að ríkið komi til móts við lífeyrissjóði með jöfnunarframlagi séu óraunhæfar – ekki síst þar sem fjármálaáætlun gerir ráð fyrir að slík framlög verði skorin niður.