Alviðrunefnd Landverndar stendur fyrir fræðslugöngu um Þrastaskóg við Sogið næstkomandi laugardag kl. 14–16. Fræðst verður um plöntur, fugla og lífið í Soginu. Náttúrufræðingarnir Einar Þorleifsson, Rannveig Thoroddsen og Skúli Skúlason leiða gönguna, sem hefst á hlaði bæjarins Alviðru

Alviðrunefnd Landverndar stendur fyrir fræðslugöngu um Þrastaskóg við Sogið næstkomandi laugardag kl. 14–16.

Fræðst verður um plöntur, fugla og lífið í Soginu. Náttúrufræðingarnir Einar Þorleifsson, Rannveig Thoroddsen og Skúli Skúlason leiða gönguna, sem hefst á hlaði bæjarins Alviðru. Þaðan verður haldið að Þrastalundi og gengið um skóginn og meðfram Soginu. Fræðslugangan er ætluð öllum aldri en fólk minnt á viðeigandi hlífðarfatnað auk þess að kíkir gæti komið að notum.

Við lok göngu verða þjóðlegar veitingar í boði í Alviðrubænum.