Tinna Björt Jónsdóttir
tbj@mbl.is
Mikill samdráttur í komum skemmtiferðaskipa til Íslands er fyrirséður á næstu árum samkvæmt því sem fram kom á fundi Cruise Iceland sem haldinn var á Parliament hótelinu í Reykjavík á dögunum. Á fundinum komu saman fulltrúar skipafélaga, þingmenn, hagaðilar og aðrir sem koma að móttöku skemmtiferðaskipa um land allt.
Samkvæmt nýjustu bókunarkúrfum og áætlunum allra helstu hagaðila í greininni er gert ráð fyrir allt að 30% samdrætti í komu skemmtiferðaskipa árið 2027 en 14% samdrætti árið 2026. Þetta kemur í kjölfar nýrra gjalda og skatta sem innleiddir hafa verið með skömmum fyrirvara, þar á meðal innviðagjalda og breytinga á tollfríðindum. Bent var á að áhrifin verði hvað mest utan höfuðborgarsvæðisins þar sem margir byggja afkomu sína á gestum úr skemmtiferðaskipum.
Samkvæmt greiningu Cruise Iceland gæti ríkið tapað um 1,7 milljörðum króna í tekjur ef samdrátturinn nær 30% auk þess sem hafnir á landsbyggðinni gætu þurft stuðning úr ríkissjóði til að mæta tekjubrestinum.
Fram kom á fundinum að mikil þörf sé á fyrirsjáanleika, jafnræði og samráði þegar kemur að lagasetningu og gjaldtöku af ferðamönnum. Þá kom einnig fram að fjölmörg lítil og meðalstór fyrirtæki, sérstaklega á Vestfjörðum, séu háð komu skemmtiferðaskipa og hafi litla möguleika á að vega upp á móti því ef skip hætta að koma. Árið 2024 komu 1.210 skemmtiferðaskip til landsins, gert er ráð fyrir að komurnar verði 1.175 við lok árs 2025.