Veisla Sjónvarpsþættirnir Succession verða í boði á HBO Max.
Veisla Sjónvarpsþættirnir Succession verða í boði á HBO Max.
Opnað verður fyrir streymisveituna HBO Max hér á landi í næsta mánuði. Áskrifendur fá aðgang að fjölmörgum þáttaröðum og kvikmyndum úr smiðju HBO, Warner Bros. Pictures, DC Studios, Max Originals og Discovery auk íþróttaefnis frá Eurosport

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Opnað verður fyrir streymisveituna HBO Max hér á landi í næsta mánuði. Áskrifendur fá aðgang að fjölmörgum þáttaröðum og kvikmyndum úr smiðju HBO, Warner Bros. Pictures, DC Studios, Max Originals og Discovery auk íþróttaefnis frá Eurosport.

Í tilkynningu kemur fram að meðal efnis sem í boði verður séu kvikmyndir eins og A Minecraft Movie og Harry Potter, sjónvarpsþáttaraðirnar Succession, The Last of Us, The White Lotus, House of the Dragon og The Pitt auk nýrri þáttaraða á borð við Task og IT: Welcome to Derry sem séu væntanlegar.

Efni á HBO Max verður aðgengi­legt á ensku með ís­lensk­um texta á völd­um titl­um en íþrótta­lýs­ing­ar verða á ensku. Grunn­á­skrift að veitunni mun kosta 13 evr­ur á mánuði, eða rúm­lega 1.900 krón­ur á nú­ver­andi gengi. Undir þeim skilmálum verður hægt að streyma í tveimur tækjum samtímis. Kjósi fólk premium-áskrift fyrir 19 evrur á mánuði er hægt að streyma í fjórum tækjum á sama tíma og að hlaða niður efni sem hægt er að horfa á án nettengingar.

Löng bið hefur verið eftir komu HBO Max til Íslands. Greint var frá því síðsumars 2021 að veitan yrði aðgengileg Íslendingum þá um haustið. Svo fór ekki og vorið 2022 var veitan opnuð í 15 Evrópulöndum en Ísland var ekki eitt þeirra. Í kjölfarið gerði Síminn víðtækan samstarfssamning til þriggja ára við HBO í lok árs 2022. Þáttaraðir frá HBO hafa verið áberandi í úrvali Sjónvarps Símans og tíðindin af opnun HBO Max hljóta því að koma illa við stjórnendur þar á bæ.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon