Andrea Sigurðardóttir
andrea@mbl.is
Nýkjörin stjórn Sósíalistaflokksins kannar um þessar mundir fjármál flokksins frá tíð fyrri stjórnar og þá ekki síst fjárveitingar félagsins til óskyldra félaga á undanförnum árum, sem nema tugum milljóna.
Opinberir styrkir til Sósíalistaflokksins, ætlaðir starfsemi stjórnmálasamtaka, hafa undanfarin ár runnið að hálfu til Alþýðufélagsins og Samstöðvarinnar og að hálfu til Vorstjörnunnar.
„Við sem erum nýkjörin inn í stjórn flokksins höfum verið í stjórnum flokksins og grasrót lengi og höfum verið að biðja um skriflega samninga á milli flokksins og Alþýðufélagsins eða Samstöðvarinnar, eða jafnvel bara samþykktir í fundargerðum, en við höfum ekkert fengið,“ segir Karl Héðinn Kristjánsson sem leiddi hallarbyltingu í flokknum á síðasta aðalfundi og situr nú í framkvæmdastjórn hans.
Hann segir Gunnar Smára Egilsson, fyrrverandi formann framkvæmdastjórnar, hafa verið ófúsan til þess að afhenda skrifleg gögn um lánveitingu Sósíalistaflokksins til Samstöðvarinnar, sem nemur tugum milljóna frá árinu 2022.
„Þetta er loðið. Þegar þú innir hann eftir skriflegri samþykkt fyrir þessari lánveitingu þá er hún ekki til, svo við höfum séð,“ segir hann.
Karl Héðinn segir þetta vera stóran þátt í því að hallarbyltingarmenn sáu sér ekki annað fært en að koma nýrri stjórn að. Í kjölfar stjórnarskipta muni Sósíalistaflokkurinn segja skilið við Vorstjörnuna og endurskoða samband sitt við Samstöðina og koma því í formlegra horf.
„Við erum núna að kafa í fjármál flokksins til þess að koma öllu upp á borð og skýra málið,“ segir hann.
Gunnar Smári vísar ásökunum Karls Héðins á bug. „Ég vissi ekki að Karl Héðinn væri að reyna að fá frá mér gögn, skrítið að hann segist reyna það án þess að ég verði þess var. Öll fjárhagsleg gögn eiga að liggja hjá gjaldkera framkvæmdastjórnar,“ segir hann. Ráðstöfunin hafi verið samþykkt af félagsmönnum með samþykki ársreikninga undangenginna ára.