Þingvellir Kirkja og ráðherrahús setja sterkan svip á staðinn.
Þingvellir Kirkja og ráðherrahús setja sterkan svip á staðinn. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Ætlunin er að skapa þarna skemmtilega stund og tilefni til að heimsækja Þingvelli, stað sem margir eiga góðar minningar um en hafa ekki heimsótt lengi,“ segir Einar Á.E. Sæmundssen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum

„Ætlunin er að skapa þarna skemmtilega stund og tilefni til að heimsækja Þingvelli, stað sem margir eiga góðar minningar um en hafa ekki heimsótt lengi,“ segir Einar Á.E. Sæmundssen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum. Næstkomandi sunnudag, 15. júní, er þjóðinni boðið að „skunda á Þingvöll“ svo vísað sé í ljóðið Öxar við ána.

Dagskráin hefst kl. 11 með sögu- og sönggöngu þar sem Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, fer frá gestastofunni á Haki fyrir hópi og segir frá sögulegum stöðum og atburðum sem tengjast Þingvöllum. Söngdagskrá hefst svo kl. 13 í Almannagjá, gegnt Lögbergi. Þar koma fram Kór Smáraskóla í Kópavogi, Seltjarnarneskórinn, Kvennakór Háskóla Íslands, Hljómfélagið og hugsanlega fleiri. Einnig verður dagskrá við hæfi barna, það er fornleifaskóli og uppsetning leikhópsins Lottu á Hróa hetti. Tónaflutningur hefst kl. 17.30 á Valhallarreit og þar mun Una Torfadóttir söngkona koma fram.

Á síðasta ári var fjölbreytt dagskrá á Þingvöllum þann 16. júní í tilefni af þjóðhátíðardegi og 80 ára afmæli lýðveldisins. Vel þótti takast til þá og er það fyrirmyndin að hátíðinni nú, þó minni verði í sniðum en í fyrra.

„Valhallarreiturinn hentar vel til samkomuhalds og því höldum við hátíðina þar nú og væntum þess að fjölmennt verði,“ segir Einar Á. E. Sæmundsen. sbs@mbl.is