Baksvið
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Mikil skriða féll úr Fagraskógarfjalli í Hítardal fyrir rétt tæpum sjö árum í sumar. Skriðan hafði mikil áhrif og breytti farvegi Hítarár. Mikið lón myndaðist norðan við skriðuna um tíma áður en áin fann sér nýjan farveg.
Þegar blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins voru á ferðinni um Hítardal nýverið þurfti ekki mjög þjálfað auga til að koma auga á sárið sem enn blasir við, enda féll mikið af efni úr fjallinu.
Það var snemma morguns 7. júlí 2018 að skriða féll úr Fagraskógarfjalli og stíflaði ána. Af jarðskjálftamælum Veðurstofu Íslands að dæma fór hún af stað um klukkan 5.17. Eyðilagði skriðan mikið land undir hlíðum fjallsins. Rúmum sólarhring síðar hafði áin, sem rennur úr Hítarvatni, fundið sér nýjan farveg og leitaði í hliðarána Tálma, og rennur þar nú.
Ein sú stærsta
Meta sérfræðingar Veðurstofunnar það svo að á bilinu 10-20 milljónir rúmmetra af efni hafi fallið í skriðunni, en þar af eru 7 milljónir sem fóru úr Fagraskógarfjalli áður en skriðan reif með sér meira efni niður á dalbotninn. Flatarmál skriðunnar er um 1,5 milljónir fermetra og þar sem skriðan er þykkust er hún 20-30 metrar að þykkt.
Skriðan er talin vera ein af stærstu skriðum sem fallið hafa á sögulegum tíma á Íslandi, en til samanburðar var berghlaupið í Öskju í júlí 2014 um 20 milljónir rúmmetra.
Hreyfingar mældust í fjallinu árin á undan
Telja sérfræðingar að veikleikar hafi verið til staðar í fjallshlíðinni áður en skriðan fór af stað. Því til staðfestingar hafa gögn úr gervitunglum sýnt að hreyfingar voru í Fagraskógarfjalli árin áður en skriðan fór af stað. Dagana áður en skriðan féll námu þær hreyfingar svo nokkrum sentimetrum, en árin á undan, 2015, 2016 og 2017, var hreyfingin minni.
Miklar rigningar og leysingar þetta sumar eru einnig taldar hafa haft áhrif að einhverju leyti. Þær hafi gert það að verkum að vatnsþrýstingur í sprungum á svæðinu hafi verið óvenju mikill og veikleikarnir valdið því að hlíðin gaf sig á þessum stað. Trausti Jónsson veðurfræðingur benti á það á sínum tíma að úrkoma í Hítardal frá 1. maí til 7. júlí þetta ár hafi mælst um 260 millimetrar. Það væri mikið, en þó ekki afbrigðilega mikið.
Til samanburðar mældist meiri úrkoma á svæðinu árið 1999, eða 300 millimetrar.