— Morgunblaðið/Karítas
Þó að blautt væri úti og ekkert sérstaklega hlýtt í veðri lagði fjöldi forvitinna barna leið sína í Elliðaárdalinn í gær til að skoða skordýr, sem voru þó mörg hver í felum vegna rigningarinnar. Pollagalli og stígvél komu að góðum notum fyrir börnin og fróðleiksfýsnin skein í hverju andliti

Þó að blautt væri úti og ekkert sérstaklega hlýtt í veðri lagði fjöldi forvitinna barna leið sína í Elliðaárdalinn í gær til að skoða skordýr, sem voru þó mörg hver í felum vegna rigningarinnar. Pollagalli og stígvél komu að góðum notum fyrir börnin og fróðleiksfýsnin skein í hverju andliti. Hin árlega og sívinsæla skordýraskoðun er samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands.