Keppni Lionel Messi mætir til leiks á mótið með liði sínu, Inter Miami.
Keppni Lionel Messi mætir til leiks á mótið með liði sínu, Inter Miami. — AFP/Rich Storry
Flautað verður til leiks á nýju Heimsmeistaramóti félagsliða í Bandaríkjunum á laugardag. Þar munu mörg af stærstu knattspyrnu­félögum heims etja kappi. Þar á meðal eru Real Madrid, Inter Mílanó, Bayern München og Juv­entus

Höskuldur Daði Magnússon

hdm@mbl.is

Flautað verður til leiks á nýju Heimsmeistaramóti félagsliða í Bandaríkjunum á laugardag. Þar munu mörg af stærstu knattspyrnu­félögum heims etja kappi. Þar á meðal eru Real Madrid, Inter Mílanó, Bayern München og Juv­entus. Þá eru sömuleiðis stórlið frá Suður-Ameríku, Asíu og Bandaríkjunum meðal þátttakenda.

Sú óvenjulega staðreynd blasir nú við knattspyrnuáhugafólki að engin íslensk sjónvarpsstöð sýnir leiki mótsins. Hafi fólk áhuga á að fylgjast með þarf það að skrá sig til leiks hjá streymisveitunni DAZN. Góðu fréttirnar eru þó að það er ókeypis að horfa á leiki keppninnar.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins höfðu forsvarsmenn DAZN samband við kollega sína hjá Stöð 2 Sport og buðu þeim að kaupa sýningarréttinn að mótinu hér á landi. Heimildir blaðsins herma að þessu tilboði hafi verið hafnað enda hefðu Íslendingar eftir sem áður getað nálgast útsendingar í gegnum miðla DAZN og því lítil von um að slík fjárfesting hefði borgað sig.

Greiddu einn milljarð dollara

Sex mánuðir eru nú síðan Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA tilkynnti að gengið hefði verið frá samningi um sýningarrétt um heim allan við DAZN. Eins og gjarnan vill verða á þeim bænum var óttalegur fnykur af þessum samningi og tilurð hans, fyrirtækið greiddi einn milljarð bandaríkjadala fyrir samninginn en þeir aurar nýttust ágætlega sem veglegur verðlaunapottur fyrir félögin 32 sem taka þátt. Eitthvað verður nú að hvetja þau áfram því ekki vantar beint fleiri leiki; flest liðin hafa spilað um 50-60 leiki í vetur.

En hvað er DAZN? Fyrir það fyrsta er rétt að halda því til haga að nafn veitunnar er borið fram „Da Zone“. Veitan hefur síður en svo verið hátt skrifuð fram til þessa en forsvarsmenn hennar boða mikla sókn í kjölfar heimsmeistaramótsins. Þeir líta á sig sem „Netflix íþróttanna“, sem er kannski nokkuð vel í lagt, en veitan hefur þó sýnt leiki úr Serie A á Ítalíu, Bundes­ligunni í Þýskalandi og La Liga á Spáni auk Meistaradeildar Evrópu í kvennaboltanum.

Einfalt að skrá sig til leiks

Tíu ár eru síðan DAZN var stofnað og hefur markmiðið alltaf verið að hafa komið undir sig fótunum þegar íþróttaútsendingar færist alfarið yfir á netveitur.

Eins og áður segir er hægt að fylgjast með öllum 63 leikjum mótsins ókeypis. Það er gert í gegnum ýmsa miðla DAZN, í appi í sjónvarpi, símum, spjaldtölvum, leikjatölvum eða hefðbundnum vefsíðum. Ein­faldar leiðbeiningar er að finna á vefsíðu DAZN.

Kjósi fólk það er hægt að kaupa sér svokallaða premium-áskrift sem felur í sér aukin gæði streymis og hljóðs auk ítarlegri yfirferðar um leiki.

Höf.: Höskuldur Daði Magnússon