Geysisdagurinn svonefndi verður haldinn hátíðlegur í 12. sinn næstkomandi laugardag, 14. júní, milli kl. 11 og 15 í bækistöð klúbbsins sem er að Skipholti 29 í Reykjavík. Geysir er fyrir fólk sem á eða átt hefur við geðrænar áskoranir að stríða og dagskráin fram undan er skemmti- og fjölskyldudagur. Þarna verður karnivalstemning og fjör. Meðal dagskráratriða er örþonið sem forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, ræsir kl. 13. Boðið verður upp á veitingar og hljómsveitin Geysisbandið mun einnig láta í sér heyra.
„Við erum ekki öll steypt í sama mótið heldur erum við ólík og höfum ólíka sýn á lífið. Þess vegna hvetjum við þátttakendur til að njóta sín í fjölbreytninni. Með því að gefa hverjum og einum tækifæri til að nýta sínar sterku hliðar þjálfast viðkomandi til fjölbreyttrar þátttöku í samfélaginu,“ segir í tilkynningu frá Geysi.