Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Áhyggjuefni okkar jeppafólks er að leiðum inni á hálendinu verði lokað og óþörf takmörk sett undir merkjum náttúruverndar. Mótleikurinn við því er fræðsla og hvatning til ábyrgrar ferðamennsku eins og ég tel okkar fólk almennt stunda,“ segir Aldís Ingimarsdóttir, formaður Ferðaklúbbsins 4x4.
Aldís er annar tveggja leiðbeinenda á námskeiðinu Akstur í óbyggðum sem endurmenntun Landbúnaðarháskóla Íslands stendur fyrir og verður haldið í næstu viku. Þar munu Aldís og Hafliði Sigtryggur Magnússon sem er varaformaður ferðaklúbbsins fjalla um ýmis grunnatriði sem mikilvægt er að hafa í huga þegar farið er um hálendið.
Jeppatúrar alltaf uppspretta ævintýra
„Ég hef verið í jeppaferðum svo lengi sem ég man. Ég fór mikið foreldrum mínum um sunnanvert hálendið, til dæmis Biskupstungnaafrétt, þegar ég var yngri og heillaðist af þessum ferðamáta. Í gegnum árin hef ég farið um nánast allt land í jeppatúrum sem eru alltaf uppspretta nýrra ævintýra,“ segir Aldís.
Námskeiðið sem hér er til umfjöllunar verður haldið á fimmtudag í næstu viku, 19. júní, milli kl. 16 og 18.30 og verður haldið í húsum LBHÍ á Keldnaholti í Reykjavík. Segja má að umfjöllunarefnið sé og verði á almennum nótum; fjallað verður um og sagt frá áhugaverðum náttúruperlum á hálendinu þangað sem helst er jeppafært. Fjallað verður almennt um jeppa, litla sem stóra, eiginleika þeirra og getu. Einnig segir frá mismunandi aðstæðum, svo sem grófum vegum, moldarslóðum, söndum, mýrum og bleytum. Þá verður sérstakur gaumur gefinn því hvernig aka eigi yfir óbrúaðar ár og hvað beri að varast.
Aðgát og ekkert klikkar
„Að fara yfir á brotinu er þumalputtaregla þegar aka þarf yfir ár. Þó þarf alltaf að lesa í aðstæður á hverjum stað og á námskeiðinu ætlum við að segja frá því hvað helst þurfi að hafa í huga. Akstur á fjöllum er yfirleitt krefjandi, ekki síst þegar aftanívagnar eru í jeppunum; til dæmis kerra, tjaldvagn, fellihýsi eða hjólhýsi,“ segir Aldís. – Þau Hafliði munu einnig segja frá því hvað hafa ber í huga ef draga á annað farartæki; til dæmis bilaða bíla og fasta. Farið verður yfir íslenskar reglur, svo sem ef tjón verður, þá eru það tryggingar jeppans sem dregur sem tekur tjónið.
Yfir sumarið eru margir á ferð um hálendið, gjarnan einbíla eða í litlum hópum. Í því sambandi er rétt að undirstrika nauðsyn þess að láta vita af sér ef farið er um fáfarnar slóðir. „Mikilvægt er lika að fólk ferðist um landið af þekkingu; sé læst á aðstæður og sýni aðgát. Ef svo er ætti ekkert að klikka,“ segir Aldís.