Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Lögreglan í Los Angeles-borg handtók í fyrrinótt að minnsta kosti 25 manns fyrir að brjóta gegn útgöngubanni sem borgarstjórinn Karen Bass setti á í fyrradag. Útgöngubannið verður í gildi milli kl. 20 á kvöldin og 6 um morguninn að staðartíma næstu daga að sögn Bass.
Hún tók sérstaklega fram að útgöngubannið næði einungis til svæðis sem spannar um 2,5 ferkílómetra af þeim tæplegum 1.300 ferkílómetrum sem Los Angeles-borg nær yfir, en það svæði er jafnframt það svæði þar sem helstu skemmdarverk voru unnin í óeirðum á sunnudaginn. Munu einungis íbúar, fjölmiðlamenn og viðbragðsaðilar fá aðgang að svæðinu meðan útgöngubannið er í gildi.
Alls hafa nú um 500 manns verið handteknir í Los Angeles frá því að mótmæli gegn hertri stefnu innflytjenda- og tollalögreglunnar ICE hófust á föstudaginn. Mótmæli gegn ICE hafa nú einnig sprottið upp í öðrum borgum Bandaríkjanna, þar á meðal New York, Chicago, San Francisco, Atlanta og í borgunum Austin og San Antonio í Texas-ríki. Greg Abbott, ríkisstjóri í Texas, tilkynnti í fyrrakvöld að hann myndi kalla út þjóðvarðlið ríkisins til þess að tryggja friðinn.
Í Atlanta voru mótmæli í fyrrakvöld leyst upp með táragasi eftir að hluti mótmælenda ákvað að kveikja í skoteldum og beina þeim að lögreglumönnum.
Þá sagði lögreglan í New York-borg að hún hefði handtekið 86 manns fyrir að stöðva umferð ökutækja á Manhattan-eyju en þar komu þúsundir manns saman til að mótmæla. Jessica Tisch, lögreglustjóri í New York-borg, lýsti því hins vegar sérstaklega yfir í gær að lögreglan réði vel við ástandið, og að algjör óþarfi væri að kalla til þjóðvarðlið eða aðrar alríkisstofnanir til að aðstoða við löggæslu.
Trump Bandaríkjaforseti hefur þegar kallað út 4.000 þjóðvarðliða í Kaliforníu og sent til Los Angeles, en auk þess voru 700 landgönguliðar sendir til borgarinnar á mánudagskvöld. Verður hlutverk þeirra fyrst og fremst að verja byggingar sem tilheyra alríkinu, en landgönguliðarnir munu ekki fá handtökuheimildir.