Samgöngur Strætó ætlar að fjölga ferðum og lengja þjónustutíma.
Samgöngur Strætó ætlar að fjölga ferðum og lengja þjónustutíma. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tíðni ferða Strætó mun aukast frá og með 17. ágúst á fjórum leiðum á annatíma þannig að vagnar ganga á 10 mínútna fresti í stað þess að vera á 15 mínútna fresti. Þar að auki ganga vagnar á þremur leiðum á 15 mínútna fresti í stað 30 mínútna

Tíðni ferða Strætó mun aukast frá og með 17. ágúst á fjórum leiðum á annatíma þannig að vagnar ganga á 10 mínútna fresti í stað þess að vera á 15 mínútna fresti. Þar að auki ganga vagnar á þremur leiðum á 15 mínútna fresti í stað 30 mínútna. Með þessu á að draga til baka skerðingar sem farið var í fyrir nokkrum árum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

Vagnar sem munu ganga á 10 mínútna fresti eru á leiðum 3, 5, 6 og 12 en þeir sem munu ganga á 15 mínútna fresti eru á leiðum 19, 21 og 24.

Þar að auki verður þjónustutími á kvöldin lengdur á 14 leiðum. „Eftir breytingarnar mun hlutfall íbúa sem búa innan 400 metra frá stoppistöð, sem hefur 10 mínútna tíðni á annatíma, fara úr um 18% í rúmlega 50%,“ segir í tilkynningunni. Með þessum breytingum er verið að draga til baka þær skerðingar sem urðu á þjónustu Strætó í kórónuveirufaraldrinum en Strætó hefur gengið hægt að koma þjónustunni í sama horf og var fyrir faraldurinn vegna skorts á fjármagni.