Hallarbylting Gunnar Smári var formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins en honum og fylgifé hans var bolað út á síðasta aðalfundi.
Hallarbylting Gunnar Smári var formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins en honum og fylgifé hans var bolað út á síðasta aðalfundi. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Styrkir ætlaðir starfsemi stjórnmálasamtaka sem runnið hafa til Sósíalistaflokksins frá hinu opinbera hafa verið veittir áfram í starfsemi sjálfstæðra, óskyldra félaga. Sósíalistaflokkurinn hefur fengið ríflega 100 milljónir króna í styrki frá ríkinu frá árinu 2022

Baksvið

Andrea Sigurðardóttir

andrea@mbl.is

Styrkir ætlaðir starfsemi stjórnmálasamtaka sem runnið hafa til Sósíalistaflokksins frá hinu opinbera hafa verið veittir áfram í starfsemi sjálfstæðra, óskyldra félaga.

Sósíalistaflokkurinn hefur fengið ríflega 100 milljónir króna í styrki frá ríkinu frá árinu 2022. Þeir hafa undanfarin ár að hálfu runnið til annars vegar Alþýðufélagsins og dótturfélags þess Samstöðvarinnar, og hins vegar til Vorstjörnunnar.

Samkvæmt ársreikningi Sósíalistaflokksins veitti flokkurinn Samstöðinni 15,5 milljóna króna lán árið 2023 og tæplega 3,3 milljónir króna árið 2022. Staða lánsins samkvæmt efnahagsreikningi var 15,5 milljónir króna í lok árs 2023.

Flokkurinn styrkti Alþýðufélagið um 9,8 milljónir árið 2022 og Vorstjörnuna um ríflega 25 milljónir króna á árunum 2022-2023.

Ársreikningur flokksins vegna 2024 liggur ekki fyrir, en miðað við fyrrgreinda skiptingu má gera ráð fyrir að Samstöðin og Alþýðufélagið hafi hvort um sig fengið ríflega 12 milljónir króna af ríkisstyrkjum Sósíalistaflokksins á síðasta ári, auk þess sem Vorstjarnan fær allan styrk flokksins frá Reykjavíkurborg, en þar er um að ræða lægri fjárhæðir.

Í lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka er skýrt að hin opinberu framlög eru ætluð til starfsemi flokka en engin ákvæði í lögum virðast girða fyrir að flokkarnir fari með hið opinbera framlag eins og þeim sjálfum sýnist.

Kröfur um að stjórnmálaflokkar skrái sig á stjórnmálasamtakaskrá Skattsins og skili viðhlítandi gögnum ásamt því að hafa skilað og fengið birtan ársreikning hjá Ríkisendurskoðun til þess að þeir eigi rétt á opinberum styrkjum, eru samkvæmt greinargerð settar með það í huga að auka gagnsæi í meðferð opinberra fjármuna og efla eftirlit Ríkisendurskoðunar og aðhald almennings.

Það er þó ljóst að eftirlit Ríkisendurskoðunar og aðhald almennings má sín lítils þegar fjármunirnir renna í félög, sem standa utan stjórnmálaflokkanna sem ekki eru á stjórnmálasamtakaskrá Skattsins og skila þar af leiðandi ekki þeim gögnum sem eru forsenda gagnsæisins, og lúta aukinheldur ekki eftirliti Ríkisendurskoðunar.

Umdeild lánveiting

Karl Héðinn Kristjánsson, sem leiddi hallarbyltingu í Sósíalistaflokknum á aðalfundi á dögunum og situr í dag í framkvæmdastjórn hans, skrifaði bréf til flokksmanna í mars síðastliðnum. Þar benti hann á að nær öll framlög til flokksins rynnu til Alþýðufélagsins og Vorstjörnunnar.

„[…] en hvorugt þeirra starfar eftir opnum og lýðræðislegum reglum. Alþýðufélagið, sem á og rekur Samstöðina, er í raun einkafélag Gunnars Smára. Stjórn þess er sýndarstjórn, engir félagsfundir eru haldnir, og engin leið er fyrir almenna félagsmenn að hafa áhrif á starfsemi þess,“ skrifaði Karl Héðinn.

Hann segist enn fremur hafa reynt að bjóða sig fram í stjórn Alþýðufélagsins en að honum hafi einfaldlega verið bannað það.

Gunnar Smári Egilsson, stjórnarformaður Samstöðvarinnar og fyrrverandi formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, vísar ásökunum hans á bug.

Ársreikningar Samstöðvarinnar liggja fyrir í fyrirtækjaskrá en ársreikningar Alþýðufélagsins eru ekki birtir þar. Morgunblaðið hefur vikum saman reynt að fá afhent afrit af ársreikningum félagsins frá Gunnari Smára, en afritin höfðu ekki borist blaðinu þegar það fór í prentun.

Gunnar Smári segir þó, í samtali við blaðið, Samstöðina vera 100% í eigu Alþýðufélagsins og að öll innkoma síðarnefnda félagsins, fyrir utan það sem fer í reikningshald, bankakostnað og annað slíkt, renni til reksturs Samstöðvarinnar.

Hann segir enn fremur að þegar Samstöðin var stofnuð árið 2022 hafi verið ákveðið að í stað þess að hálfur ríkisstyrkurinn væri veittur á formi styrks til Alþýðufélagsins yrði framlagið veitt sem lán til Samstöðvarinnar. Lánið sé víkjandi og vaxtalaust og því megi breyta í hlutafé.

„Þetta var gert til að bæta stöðu flokksins, að hann fengi hlutafé fyrir sitt framlag eins og aðrir aðilar sem legðu fé til Samstöðvarinnar. Þetta var samþykkt í stjórn og kynnt á aðalfundum, sem hafa samþykkt reikninga flokksins þar sem þessi tilhögun kemur fram,“ segir Gunnar Smári.

Karl Héðinn segist lengi hafa beðið þess að fá gögn um lánveitinguna, en ekki haft erindi sem erfiði og efast í reynd um að til sé skrifleg samþykkt fyrir láninu. Gunnar Smári kannast aftur á móti ekki við þær tilraunir Karls Héðins.

Höf.: Andrea Sigurðardóttir