Eitthvað var um að sauðfé dræpist vegna veðurs á Norður- og Austurlandi í júníhretinu sem gekk yfir landið í byrjun mánaðar.
Þetta segir Eyjólfur Ingi Bjarnason, formaður deildar sauðfjárbænda innan Bændasamtaka Íslands.
Hann segir það hafa verið ofboðslega slæmt að fá kuldahret ofan í blíðuna sem var í maí. Mjög margir bændur hafi hýst sauðféð, þar sem það þolir kuldann illa, en svona löng innistaða geri dýrunum þó ekki gott. Eyjólfur segir að margir bændur hafi hleypt dýrunum fyrst út á mánudaginn og að sumir muni ekki gera það fyrr en næstu daga. Dýrin hafa því verið inni í um viku, sem telst langur tími.
Slæmar aðstæður mynduðust í hretinu, sem færðist yfir Norður- og Austurland í byrjun mánaðar, og þurftu björgunarsveitamenn að aðstoða bændur við að bjarga sauðfé sem hafði verið sett út.
„Staðbundið var veðrið verra en spáin sagði til um og ástandið verra en í fyrra þó svo að heildarumfang júníhretsins hafi verið minna í ár en í fyrra,“ segir Eyjólfur.
Þetta hafi ekki verið það sem menn þurftu eftir síðasta ár, þegar veður var slæmt og kalt. „Þetta ýfði upp slæmar minningar.“
Hann segir að þetta hret hafi haft víðtækari áhrif vegna hitabylgjunnar sem var í maí, þar sem gróður var kominn snemma af stað og sauðféð hafði dreift sér víðar vegna þess. signyp@mbl.is