Pétur Einar Pétursson fæddist á Gili Fáskrúðsfirði 29. maí 1962. Hann lést á heimili sínu 25. maí 2025.

Foreldrar hans voru Hjördís Ágústsdóttir, f. 29. maí 1933, og Pétur Herlúf Jóhannesson, f. 13. júní 1929. Pétur var fimmti af sjö systkinum, hin eru: Anna Þóra, f. 1949, Jóhannes Marteinn, f. 1953, Sigurður Ágúst, f. 1956, Friðmar, f. 1959, d. 2020, Herdís, f. 1964, og Haraldur Leó, f. 1979.

Dóttir Péturs Einars er Sigurlaug Stefanía, f. 29. júní 1990. Eiginmaður hennar er Bergvin Stefánsson, f. 16. mars 1983. Börn þeirra eru Elísa Björk og Rómeó Manúel.

Pétur Einar fór ungur til sjós og þótti afburða sjómaður og eftir að hann kom í land stundaði hann málningarvinnu.

Pétur Einar verður jarðsunginn frá Fáskrúðsfjarðarkirkju í dag, 12. júní 2025, klukkan 14.

Streymi:
www.mbl.is/utfarir-i-dag

Nú þegar komið er að kveðjustund ylja ég mér við minningar sem ég geymi fast í hjarta mér. Við Pétur Einar ólumst upp í stórum systkinahóp, sjö vorum við samtals og húsið Gil ekki mjög stórt og því þurftum við að deila herbergi í nokkur ár. Þó þú værir tveimur árum eldri en ég svæfði ég þig oft á kvöldin, hélt í hönd þína og söng fyrir þig. Mér fannst þú alltaf vera litli bróðir minn.

Man ég er móðir okkar sagði við okkur tvö og Friðmar bróður okkar (blessuð sé minning hans): „Í rúmið með ykkur, pabbi ykkar fer að koma heim.“ Hann átti búð sem var opin til kl 23 og við hlupum inn í herbergi og upp í rúm, héldum að klukkan væri orðin margt, svo þegar við vorum búin að liggja ansi lengi að okkur fannst sagði Friðmar: „Pétur Einar, kíktu fram, ég heyri ekki í mömmu og pabba og gáðu hvað klukkan er.“ Því hann var sá eini sem kunni á klukku, og viti menn klukkan var 20.30. Þá hafði mamma laumast í heimsókn til systir sinnar Jennýjar (skil mömmu vel í dag).

Svo liðu árin og tónlistar-, teikni- og málarahæfileikar þínir komu í ljós sem þú fékkst í vöggugjöf. Oft varstu fenginn til að gera auglýsingar fyrir böll og ýmsar skemmtanir. Spilaðir í hljómsveitum með bræðrum þínum, Jóhannesi, Sigurði og Friðmari og föður þínum Pétri Herlúf, en hann sá um gömlu dansana. En því miður áttir þú harðan húsbónda, Bakkus, sem yfirtók þig og stjórnaði þínu lífi.

Elsku bróðir eða Luggulugg, eins og ég kallaði þig alltaf, hvíldu í friði.

Þín systir,

Herdís Pétursdóttir.

Þótt ég sé látinn,

harmið mig ekki með tárum.

Hugsið ekki um dauðann

með harmi og ótta.

Ég er svo nærri

að hvert eitt ykkar tár

snertir mig og kvelur,

þó látinn mig haldið.

En þegar þið hlæið og

syngið með glöðum hug

sál mín lyftist upp í mót,

til ljóssins.

Verið glöð og þakklát

fyrir allt sem lífið gefur.

Og ég, þótt látinn sé, tek þátt

í gleði ykkar yfir lífinu.

(Þýð.: Gunnar Dal)

Hvíl í friði,

Kristmann Egill mágur.