Listmálari Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir við eitt verka sinna.
Listmálari Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir við eitt verka sinna.
Gleðistund verður á Kvoslæk í Fljótshlíð laugardaginn 14. júní kl. 15, þegar Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir, listmálari frá Vestur-Sámsstöðum, nú búsett á Sámsstaðabakka í Fljótshlíð, kynnir listsköpun sína undir fyrirsögninni Frá hagahliðinu

Gleðistund verður á Kvoslæk í Fljótshlíð laugardaginn 14. júní kl. 15, þegar Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir, listmálari frá Vestur-Sámsstöðum, nú búsett á Sámsstaðabakka í Fljótshlíð, kynnir listsköpun sína undir fyrirsögninni Frá hagahliðinu.

Þetta er 14. sumarið sem heimilisfólkið á Kvoslæk, Rut Ingólfsdóttir og Björn Bjarnason, bjóða til menningarviðburða í Hlöðunni hjá sér. Að þessu sinni verða viðburðirnir fimm og er Hrafnhildur Inga fyrsti listamaðurinn sem kemur fram í sumar.

Hrafnhildur Inga fæddist 19. mars 1946 að Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð og ólst þar upp. Hún hefur lengst af búið á höfuðborgarsvæðinu en hefur snúið á heimaslóðir á ný og býr nú jöfnum höndum í Garðabæ og á Sámsstaðabakka í Fljótshlíð við bakka Þverár.

Hún stundaði myndlistarnám við Myndlistaskólann í Reykjavík 1978 og 1979, Myndlista- og handíðaskóla Íslands, nú Listaháskóla Íslands, 1980-1984 og lauk þaðan prófi í grafískri hönnun. Árin 1999-2000 bætti hún við sig námi í olíumálun í Myndlistarskóla Kópavogs.

Hrafnhildur Inga hefur eingöngu unnið að myndlist undanfarin 25 ár. Hún heldur reglulega einkasýningar í Gallerí Fold og hefur haldið einkasýningar víðar, m.a. í Hafnarborg árið 2007, Artóteki 2012 og í Vínarborg 2024. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og listamessum víða um heim.

Kvoslækur

Hjónin Björn Bjarnason og Rut Ingólfsdóttir hafa staðið fyrir menningarviðburðum á Kvoslæk í 14 ár.

Fjölmargir listamenn hafa komið fram í Hlöðunni að Kvoslæk.

Þann 28. júní mætir Eyþór Árnason skáld með ljóðadagskrá.