Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta er ekki frábær staða,“ segir Daníel Kári Stefánsson, framkvæmdastjóri Starbucks á Íslandi. Til stóð að opna tvö kaffihús Starbucks í miðborg Reykjavíkur í maí en opnunin hefur nú frestast fram í sumarlok. Ástæðu tafanna má rekja til seinagangs við leyfisveitingar hjá Reykjavíkurborg.
Morgunblaðið hefur síðustu daga fjallað um óánægju veitingamanna með tafir við leyfisveitingar. Eigendur bakarísins Hygge hafa beðið í rúmlega 200 daga eftir rekstrarleyfi og fleiri staðir hafa þurft að sætta sig við óþarfar tafir. Ný reglugerð um hollustuhætti hefur tafið erfitt ferli enn frekar. Í henni felst meðal annars að þegar leyfi hefur verið samþykkt er það sett í kynningu á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í fjórar vikur þar sem hægt er að gera athugasemdir. Að þeim tíma liðnum geta veitingamenn þurft að bíða í allt að fjórar vikur eftir endanlegri ákvörðun.
„Við sóttum um úttekt byggingarstjóra um miðjan maí en fáum ekki úttekt fyrr en 26. júní. Þá getur heilbrigðiseftirlitið auglýst. Við fáum því kannski rekstrarleyfi í ágúst,“ segir Daníel.
Vissi ekki af nýrri reglugerð
Hann segir eðlilegt að fólki gefist tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum ef opna á veitingastað í nýjum hverfum eða þar sem staðir hafa ekki verið. „Okkar staður er á Hafnartorgi, inni í mathöll. Það er aðeins öðruvísi.“
Daníel, sem er þrautreyndur veitingamaður, segir að hann hafi ekki vitað um þessa nýju reglugerð, sem tekin var í gagnið í maí, þegar hann sótti um rekstrarleyfi. Upplýsingar hafi ekki legið fyrir á heimasíðu Reykjavíkurborgar. „Þar var hvergi minnst á þetta ferli í leiðbeiningunum. Svo hringi ég í heilbrigðiseftirlitið til að taka stöðuna eftir að ég sendi inn umsókn og þá fæ ég þessar upplýsingar.“
Undirbúningur að opnun Starbucks-kaffihúsanna hefur staðið yfir allt árið og voru starfsmenn meðal annars sendir í þjálfun til Spánar. Seinkun á opnun staðanna þýðir að viðhalda þarf þjálfun starfsmanna með tilheyrandi kostnaði. „Þeir verða alla vega í góðri þjálfun þegar við opnum,“ segir Daníel.