Hinn 14. júní næstkomandi verða 250 ár liðin frá stofnun Bandaríkjahers og af því tilefni eru tekin að streyma til Washington vopnakerfi af hinum ýmsu gerðum. Til sýnis verða m.a. orrustuskriðdrekar, brynvagnar af ýmsum gerðum, árásardrónar, loftför og taktfastar hersveitir. Þennan sama dag fagnar einnig Donald Trump Bandaríkjaforseti 79 ára afmæli sínu.
Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hvetur landa sína þennan dag til að minnast þeirrar miklu fórnar sem hermenn hafa fært í þágu Bandaríkjanna í gegnum árin, hugrekkis þeirra, sigra og vilja til að vernda lýðræðið.
Auk hersýningar verða útitónleikar, ræðuhöld og uppákomur ýmis konar um alla borg. Þá verður einnig minningarstund haldin í Arlington-kirkjugarði.