Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, verður gerður að heiðursfélaga Arkitektafélags Íslands við formlega athöfn í Elliðaárstöð síðdegis í dag. Samþykkt var á aðalfundi félagsins í mars sl. að heiðra Þorstein með þessum hætti
Þorsteinn Gunnarsson, arkitekt og leikari, verður gerður að heiðursfélaga Arkitektafélags Íslands við formlega athöfn í Elliðaárstöð síðdegis í dag. Samþykkt var á aðalfundi félagsins í mars sl. að heiðra Þorstein með þessum hætti.
Þorsteinn lauk námi í arkitektúr frá Listaakademíunni í Kaupmannahöfn 1966 og síðan framhaldsnámi í byggingafornleifafræði við Franska skólann í Aþenu, Grikklandi. Þorsteinn er fyrsti íslenski arkitektinn með sérmenntun í endurgerð gamalla bygginga.