Þórhallur Margeir Einarsson fæddist á Sæborg við Hjalteyri 14. febrúar 1931. Hann lést 25. maí 2025.

Foreldrar hans voru Einar Jónasson, f. 2.12. 1888, d. 23.2. 1969, og Kristín Margrét Kristjánsdóttir, f. 22.11. 1894, d. 22.6. 1977. Systkini hans voru Jónas Kristján Einarsson, f. 22.11. 1920, d. 14.4. 2005, Haraldur Axel Einarsson, f. 8.4. 1925, d. 15.7. 2004, Pétur Einarsson, f. 6.7. 1926, d. 10.3. 1992, og María Margrét Einarsdóttir, f. 19.11. 1934, d. 21.06. 2021.

Þórhallur gekk í hjónaband 17.6. 1968 með Ólöfu Guðrúnu Eyjólfsdóttur, f. 15.12. 1923, d. 9.8. 2020.

Útför Þórhalls fer fram frá Lindakirkju í dag, 12. júní 2025, klukkan 13.

En komin eru leiðarlok

og lífsins kerti brunnið

og þín er liðin æviönn

á enda skeiðið runnið.

Í hugann kemur minning mörg,

og myndir horfinna daga,

frá liðnum stundum læðist fram

mörg ljúf og falleg saga.

Svo, vinur kæri, vertu sæll,

nú vegir skilja að sinni.

Þín gæta máttug verndarvöld

á vegferð nýrri þinni.

Með heitu, bljúgu þeli þér

ég þakka kynninguna,

um göfugan og góðan dreng

ég geymi minninguna.

(Höf. ókunnur)

Hvíl í friði elsku frændi okkar.

Ása, Atli
og Kristín.