Bryndís Kolbrún fæddist 12. desember 1952 á Brimnesi Ólafsfirði. Hún lést 2. júní 2025 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri.

Foreldrar hennar voru Sigursteinn Magnússon, f. 17.8. 1902, d. 21.11. 1960, skólastjóri og Ásta J. Jónsdóttir, f. 28.4. 1911, og d. 5.7. 1996. Systkini hennar eru Hrefna, f. 15.4. 1933, d. 12.11. 2021, Hildur, f. 4.3. 1936, Magnús, f. 30.12. 1938, Gréta, f. 6.6. 1940, d. 29.5. 2014, Jón, f. 8.4. 1945, Halldór, f. 8.4. 1945.

Eiginmaður Bryndísar er Ingimundur Sigurðsson, f. 28.7. 1950, vélstjóri. Foreldrar hans voru Sigurður Vigfús Ingimundarson, f. 5.9. 1922, d. 29.12. 2023, og Rósa Ólafsdóttir, f. 19.8. 1925, d. 19.3. 2006. Synir Ingimundar og Bryndísar eru: 1) Sigurður Reginn, f. 25.11. 1972, fyrri eiginkona hans Jóhanna Bragadóttir, f. 23.6. 1977, d. 21.7. 2015. Dætur þeirra eru Silvía Rós, f. 23.10. 1996, og Bríet Eva, f. 25.12. 1980. Eiginkona Patryja Krawczyk, f. 10.1. 1985. Börn þeirra eru Leo Ingimundur, f. 10.12. 2018, Sara Bryndís, f. 3.6. 2020, Pilip, fóstursonur Sigurðar, f. 18.5. 2011. 2) Sölvi Hrafn, f. 20.1. 1974, kona hans María Björk Gísladóttir, f. 16.6. 1980. Börn þeirra eru Hrafn Ingi, f. 5.7. 2014, og Ylfa Rún, f. 28.08. 2017.

Bræður Ingimundar eru Ólafur Baldvin, 1.1. 1952, eiginkona Elín J. Jakobsdóttir, f. 28.1. 1954, og Haukur, f. 24.10. 1957, d. 8.5. 2010, eiginkona hans var Ólína Margrét, f. 28.5. 1961.

Ingimundur og Bryndís reistu sér hús við Hlíðarveg á Ólafsfirði og bjuggu þar alla sína tíð. Þau voru heimakær og nutu þess að skoða landið þegar tækifæri gafst ásamt því að heimsækja ættingjana suður með sjó.

Útför Bryndísar verður frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 12. júní 2025, klukkan 14.

Hún var Íslendingur.

Hún var hetja, auðmjúk og kærleiksrík sínum.

Hún elskaði fjöllin og fjörðinn sinn.

Hún þekkti allt í kringum sig.

Hún ræktaði og sáði fyrir blómum.

Hún þekkti líka blómin og grösin og fuglana í náttúrunni.

Hún var listakona málaði myndir.

Hún dáði drengina sína og tengdadæturnar.

Hún elskaði barnabörnin sín.

Hún deildi með þeim draumum sínum og þeirra.

Hún var fróðleiksfús.

Hún skráði minningar sínar.

Hún átti góðan lífsförunaut.

Hún var mjög heimakær þar var best.

Elín Jónína Jakobsdóttir.