List Ellý Reykjalín í bol úr eigin smiðju, í bakgrunni er klósettgámurinn fagri við heitu pottana á Hauganesi.
List Ellý Reykjalín í bol úr eigin smiðju, í bakgrunni er klósettgámurinn fagri við heitu pottana á Hauganesi. — Ljósmynd/Jóhann Guðni Reynisson
Listakonan Ellý Reykjalín hefur vakið athygli með litríkri hönnun á klósettgámi við fjörupottana á Hauganesi í Eyjafirði. Gámurinn hefur hlotið viðurnefnið „fallegasti klósettgámur landsins“ og ekki að ástæðulausu

Tinna Björt Jónsdóttir

tbj@mbl.is

Listakonan Ellý Reykjalín hefur vakið athygli með litríkri hönnun á klósettgámi við fjörupottana á Hauganesi í Eyjafirði.

Gámurinn hefur hlotið viðurnefnið „fallegasti klósettgámur landsins“ og ekki að ástæðulausu.

„Þetta er sami stíll og er á veitingastaðnum Bakkalábar hér á Hauganesi,“ segir Ellý, aðspurð hvaðan innblásturinn að hönnun gámsins hafi komið. „Þegar maður tekur nokkur skref þá er maður kominn þangað frá klósettgámnum, þannig að þetta tengist allt saman.“

Gámurinn stendur við fjörupottana í fjörunni, þar sem böðin á Hauganesi hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár.

„Það vantaði bara betri salernisaðstöðu fyrir gesti sem koma í böðin. Tilgangurinn er að þjónusta þá sem sækja böðin heim,“ segir Ellý.

Málningarvinnan tók um mánuð. „Það gekk vel, þó að norðanáttin hafi stundum verið pínu köld hélt ég samt ótrauð áfram,“ segir hún. Ellý þurfti að bera málninguna á í nokkrum lögum: „Þetta er járngámur, þannig að ég þurfti að passa að hafa lögin þykk. Ég málaði hann í þremur lögum, til að þetta myndi endast vel – því hér verða alveg almennilegir vetur.“

Instagram-vænn gámur

Viðtökurnar hafa ekki látið á sér standa. „Þetta er orðinn vinsæll staður til að taka myndir fyrir Instagram,“ tekur Ellý fram. Fólk stoppar og dáist að verkinu og hefur kallað hann fallegasta klósettgám landsins.

„Ég held að hann sé bara kominn með það viðurnefni,“ segir hún.

Aðspurð hvernig hún taki slíkri viðurkenningu, svarar hún: „Það er bara heiður fyrir mig að fá að taka þátt í og eiga svoleiðis verkefni.“

Þó að Ellý sé ekki búsett á Hauganesi vinnur hún þar og á sterka tengingu við staðinn. „Hvort sem það er viljandi eða ómeðvitað, þá held ég að það að alast upp á Hauganesi hafi alltaf áhrif á sköpunina mína. Þetta er alltaf innblástur.“

Galleríið í fiskbúðinni

Listin hennar er víða sýnileg á staðnum – nú síðast í galleríi hjá Ektafiski.

„Ég er með karakterteikningar af fólki og býð líka upp á boli og svuntur með minni hönnun. Við köllum þetta galleríið í fiskbúðinni,“ segir Ellý.

Aðspurð hvort hún sé með mörg járn í eldinum svarar hún að svo sé.

„Ég er líka með listmuni og sölumuni fyrir utan Fiskhúsið. Hér kemur fólk í hvalaskoðun og labbar framhjá, þannig að það er alltaf hægt að kíkja við. Svo má alltaf hafa samband við mig, til dæmis með teikniverkefni eða ef fólk vill panta flíkur. Ég er með einstaklega flotta Facebook-síðu sem heitir Ellý Reykjalín Art,“ segir Ellý að lokum.

Höf.: Tinna Björt Jónsdóttir