Í gær hófst kærleiksherferð Riddara kærleikans þar sem safnað er fyrir húsnæði sem myndi hýsa geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis, sem mun heita Bryndísarhlíð.
Kærleiksherferðin hófst með viðburði í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík. Á viðburðinum hélt Halla Tómasdóttir forseti Íslands ræðu ásamt Ölmu Möller heilbrigðisráðherra.
Allt söfnunarfé rennur óskert til Minningarsjóðs Bryndísar Klöru, sem var stofnaður í kjölfar fráfalls Bryndísar Klöru Birgisdóttur, sem lést eftir hnífaárás á Menningarnótt í Reykjavík á síðastliðnu ári. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um kærleiksherferðina á vefsíðunni www.riddararkaerleikans.is